Ríkisstjórnin samþykkti að lengja fæðingarorlof Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 30. nóvember 2012 12:02 Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kynnti frumvarpið í ríkisstjórn í morgun.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun frumvarp velferðarráðherra um að greiðslur í fæðingarorlofi verði hækkaðar á ný og fæðingarorlofið lengt úr níu mánuðum í tólf í áföngum. Frumvarpið er lagt fram til breytinga á lögum um fæðingar- og foreldraorlof í því skyni að hefja endurreisn fæðingarorlofskerfsins þannig að það verði í það minnsta jafnsett því kerfi sem var í gildi fyrir árið 2009. Þá voru greiðslur úr sjóðnum skertar, en það var liður í sparnaðaraðgerðum ríkisins eftir efnahagshrunið. Í frumvarpi velferðarráðherra er gert ráð fyrir að hámarksgreiðsla verði hækkuð úr 300 þúsund krónum í 350 þúsund krónur strax 1. janúar 2013. Þá er lagt er til að foreldrar í fæðingarorlofi fái að nýju 80% af meðtaltali heildarlauna á tilteknu viðmiðunartímabili í fæðingarorlofi. Einnig er lagt til að fæðingarorlof foreldra verði lengt úr níu mánuðum í tólf mánuði í áföngum og að lengingin verði komin að fullu til framkvæmda á árinu 2016. Áhersla er lögð á að foreldrar eigi jafna möguleika á að taka fæðingarorlof og er lagt til að sama skipting og verið hefur verði áfram. Þannig bætist einn mánuður við sjálfstæðan rétt hvors foreldris og jafnframt einn mánuður við sameiginlegan rétt foreldra. Þá er lögð til breyting á framlengingu fæðingarorlofs foreldra langveikra eða alvarlegra fatlaðra barna.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira