Ásgeir Trausti líklegur til árangurs á Íslensku tónlistarverðlaununum Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. nóvember 2012 12:39 Ásgeir Trausti er með margar tilnefningar til tónlistarverðlaunanna.
Ásgeir Trausti, Retro Stefson og Moses Hightower eru með flestar tilnefningarnar til Íslensku tónlistarverðlaunanna að þessu sinni. Það voru þau Gerður G. Bjarklind og Felix Bergsson sem kynntu tilnefningarnar. Jafnframt var greint frá því að Íslensku tónlistarverðlaunin verða afhent í 19. sinn í Silfurbergi, Hörpu við hátíðlega athöfn í febrúar næstkomandi.Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 20121. LAGAHÖFUNDUR ÁRSINS (Popp og rokk)Ásgeir Trausti - Fyrir lög á plötunni Dýrð í dauðaþögn.Jónas Sigurðsson - Fyrir lög á plötunni Þar sem himin ber við haf.Moses Hightower - Fyrir lög á plötunni Önnur Mósebók.Unnsteinn Manuel Stefánsson - Fyrir lög á plötunni Retro Stefson.Valdimar Guðmundsson, Ásgeir Aðalsteinsson, Kristinn Evertsson og Högni Þorsteinsson (Hljómsveitin Valdimar) - Fyrir lög á plötunni Um stund.2. LAG ÁRSINS (Popp og rokk)Baldursbrá - Í flutningi Ojba Rasta - Lag og texti: Arnljótur Sigurðsson.Glow - Í flutningi Retro Stefson - Lag og texti: Unnsteinn Manuel Stefánsson.Leyndarmál - Í flutningi Ásgeirs Trausta - Lag: Ásgeir Trausti, Texti: Einar Georg Einarsson og Júlíus Aðalsteinn Róbertsson.Sjáum hvað setur - Í flutningi Moses Hightower - Lag: Moses Hightower, Texti: Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague.Tenderloin - Í flutningi Tilbury - Lag og texti: Þormóður Dagsson.3. SÖNGVARI ÁRSINS (Popp, rokk, djass og blús)Andri Ólafsson - Fyrir söng á plötu Moses Hightower, Önnur Mósebók.Ásgeir Trausti - Fyrir einlægan og heillandi söng á fyrstu plötu sinni, Dýrð í dauðaþögn, sem hæfði beint í mark.Steingrímur Teague - Fyrir söng á plötu Moses Hightower, Önnur Mósebók.Unnsteinn Manuel Stefánsson - Fyrir söng með hljómsveitunum Retro Stefson, Nýdönsk o.fl. og í Áramótamóti Hljómskálans.Valdimar Guðmundsson - Fyrir góða túlkun á fjölbreyttri tónlist á bæði hljómplötum og hljómleikum.4. SÖNGKONA ÁRSINS (Popp, rokk, djass og blús)Andrea Gylfadóttir - Fyrir söng á tónleikunum á fimmtugsafmælistónleikum sínum og með Todmobile.Eivör - Fyrir söng á plötunni Room.Ellen Kristjánsdóttir - Fyrir söng á plötunni Sönglög og á plötu Mannakorna, Í blómabrekkunni.Nanna Bryndís Hilmarsdóttir - Fyrir söng á tónleikum með Of Monsters and Men í Hljómskálanum og á Iceland Airwaves.Sigríður Thorlacius - Fyrir fjölhæfni í söngtúlkun við flutning margvíslegra verkefna.5. TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS (Popp, rokk, djass og blús)Jónas Sigurðsson og Lúðrasveit Þorlákshafnar - Fyrir skemmtilegt samstarf og glæsilega útgáfutónleika í Þorlákshöfn.Retro Stefson - Fyrir líflega sviðsframkomu og dúndrandi stuð sem skapast jafnan á tónleikum sveitarinnar.Sigur Rós - Fyrir vandaða og þétta spilamennsku og myndræna tónleika sem snertu við tónleikagestum.Skálmöld - Fyrir kröftugan tónflutning og nýstárlega sambræðslu tóna og texta sem tengjast þjóðararfinum.Skúli Sverrisson - Fyrir tónleikahald á árinu þar sem áherslan var á dýpt og einfaldleika.6. HLJÓMPLATA ÁRSINS (Popp og rokk)Division of Culture and Tourism - GhostigitalDýrð í dauðaþögn - Ásgeir TraustiGod's Lonely Man - Pétur BenRetro Stefson – Retro StefsonUm stund - ValdimarÞar sem himin ber við haf - Jónas SigurðssonÖnnur Mósebók - Moses Hightower7. TÓNHÖFUNDUR ÁRSINS (Djass og blús)Agnar Már Magnússon - Fyrir verk á plötunni Hylur þar sem flæðandi píanóleikur í anda spunans nýtur sín til fullnustu.Andrés Þór Gunnlaugsson - Fyrir verk á plötunni Mónókróm þar sem heildstætt svipmót og persónlegur stíll eru í fyrirrúmi.Scott McLemore - Fyrir verk á plötunni Remote Control þar sem áhrif tveggja heima mætast í stílhreinni sköpun.Skúli Sverrisson - Fyrir verk á plötunni The Box Tree þar sem sérkenni Skúla sem tónsmiðar komast frábærlega til skila.Tómas R. Einarsson - Fyrir verk á plötunni Laxness þar sem margbreytilegar tónhendingar styðja kvikmyndaverk af öryggi.8. TÓNVERK ÁRSINS (Djass og blús)Bjartur – Tómas R. Einarsson. Djúpt dramatísk ljóð í ljúfum tónum.Fragments – Skúli Sverrisson. Seiðandi djassópus sem sækir á hugann.Mónókróm – Andrés Þór Gunnlaugsson. Margbreytileg lagasmíð með tónrænni spennu.Remote Location – Scott McLemore. Íhugult margslungið verk, með sterkri tilvísun í djasshefðina.9. HLJÓMPLATA ÁRSINS (Djass og blús)Hylur – Agnar Már Magnússon. Impressjónískur spuni þar sem leitað er fanga í fjölbreyttum hugmyndaheimi píanistans.Morgana's Revenge – Björn Thoroddsen og Richard Gillis. Björn og Vestur-Íslendingurinn Richard Gilles í hópi frábærra kanadískra hljóðfæraleikara þar sem hin ýmsu stílbrigði djassins njóta sín firnavel.Mónókrom – Andrés Þór Gunnlaugsson. Glæsilega vel samspilaður kvartett glímir við spennandi tónlist Andrésar Þórs.Remote Location – Scott McLemore. Lágstemmd en jafnframt djörf tónlist Scotts blómstrar með íslenska kvintettinum hans.The Box Tree – Skúli Sverrisson og Óskar Guðjónsson. Skúli og Óskar leiða okkur að nýju inní töfraheim tóna sinna, sem hafa haft áhrif víða.10. TEXTAHÖFUNDUR ÁRSINS (Allir flokkar)Andri Ólafsson og Steingrímur Teague - Fyrir texta á plötunni Önnur Mósebók.Einar Georg Einarsson - Fyrir texta á plötunni Dýrð í dauðaþögn.Hjalti Þorkelsson, Guðni Gunnarsson og Eiríkur Fannar Torfason (Hljómsveitin Múgsefjun) - Fyrir texta á plötunni Múgsefjun.Jónas Sigurðsson - Fyrir texta á plötunni Þar sem himin ber við haf.Snæbjörn Ragnarsson - Fyrir texta á plötunni Börn Loka.11. TÓNLISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS (Allir flokkar)Iceland Airwaves - Fyrir fjölbreytni og vel heppnaða hátíð.Jazzhátíð Reykjavíkur - Fyrir að efla djasslíf í landinu.Mugison í Hörpu - Fyrir ákaflega vel heppnaðan lokapunkt á farsælu ári 2011.Reykjavik Midsummer Music - Sjaldan hefur kammertónlist verið flutt hér á landi af jafnmikilli andagift og eldmóði og á þessari hátíð.Sigur Rós á Iceland Airwaves - Fyrir magnaða tónleika í Laugardalshöll.Tectonics - Áræðin og spennandi hátíð undir listrænni stjórn Ilans Volkovs.12. UPPTÖKUSTJÓRI ÁRSINS (Allir flokkar)Alex Sommers & Sigur Rós - Fyrir plötuna Valtari.Christopher Tarnow - Fyrir Vetrarferðina.Georg Magnússon –Fyrir Abel, geislaplötu Nordic Affect hópsins.Guðmundur Kristinn Jónsson - Fyrir plöturnar Dýrð í dauðaþögn, Okkar menn á Havana, tónlist í Hljómskálanum o.fl. verkefni.Magnús Árni Öder Kristinsson - Fyrir plöturnar Moment með Láru Rúnars og Önnur Mósebók með Moses Hightower.Styrmir Hauksson & Hermigervill - Fyrir plötuna Retro Stefson.13. TÓNHÖFUNDUR ÁRSINS (Sígild- og samtímatónlist)Anna Þorvaldsdóttir - Fyrir verkið Scape. Anna er listamaður með sterka sýn og eigin rödd í verkum sínum.Áskell Másson - Fyrir Hornkonsert. Þar nýtir Áskell hljóðfærið og náttúrutónaraðir þess á áhrifaríkan hátt.Daníel Bjarnason - Fyrir The Isle is Full of Noises og Over the Light Earth. Vel samin og áheyrileg verk Daníels Bjarnasonar hafa vakið verðskuldaða athygli undanfarið.Hugi Guðmundsson - Fyrir verkið Orkestur. Hugi leitar fanga víða og skeytir saman ólíkum heimum í verkum sínum með eftirtektarverðri útkomu.Þórður Magnússon - Fyrir verkið Saxófónkvartett. Spennandi verk sem sameinar húmor og rótgrónar hefðir.14. TÓNVERK ÁRSINS (Sígild- og samtímatónlist)Hornkonsert -Áskell Másson. Vel fléttuð heild. Í verkinu nýtir Áskell hljóðfærið og náttúrutónaraðir þess afar vel.The Isle is Full of Noises - Daníel Bjarnason. Verkið nær vel andrúmslofti fegurðar og átaka í anda yrkisefnisins.Orkestur - Hugi Guðmundsson. Í verkinu teflir Hugi fram andstæðum í blæ og stemmningu. Upphafið er gegnsætt en svo hefst annar kafli með miklu brassi og alveg nýjum tón. Glæsilegt og skemmtilegt verk.Saxófónkvartett - Þórður Magnússon. Spennandi verk – húmor – eitthvað ferskt og nýtt – samt tengt rótgrónum hefðum.Scape - Anna Þorvaldsdóttir. Scape fyrir "undirbúið píano" er í senn gegnsætt, fínlegt, drungalegt og spennandi. Hér hefur Anna enn einu sinni slegið nýjan tón.15. TÓNLISTARFLYTJANDI ÁRSINS (Sígild- og samtímatónlist)Einar Jóhannesson - Fyrir flutning á Reykjavik Midsummer Music í Hörpu í júní síðastliðnum. Sérstaklega er eftirminnilegur flutningur hans í Kvartetti um endalok tímans eftir Messiaen.Elfa Rún Kristinsdóttir - Fyrir fiðlupartinn í Sinfonia concertante eftir Mozart á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands sl. vor og flutning með kammersveit sinni Kaleidoscope á tónlistarhátíð í Hörpu í október.Joseph Ognibene, hornleikari og Petri Sakari, stjórnandi - Fyrir frumflutning á Hornkonserti Áskels Mássonar með Sinfóníuhljómsveit Íslands.Mótettukór Hallgrímskirkju - Fyrir flutning á Níundu sinfóníu Beethovens, Messu í c-moll eftir Mozart og Óttusöngva á vori eftir Jón Nordal og margt fleira á sérlega öflugu 30 ára afmælisári sínu.Sinfóníuhljómsveit Íslands - Á árinu tókst hljómsveitin á við margbreytileg verk á áræðinn og ferskan hátt. Meðal hápunkta ársins má nefna Beethoven-hringinn og Tectonics hátíðina.Víkingur Heiðar Ólafsson - Fyrir flutning bæði sem einleikari og kammermúsikspilari á fjölmörgum tónleikum. Hann miðlar tónlistinni á persónulegan og einlægan hátt og tekur áheyrendur með sér í ferðalag inn í undraveröld tónlistarinnar.16. SÖNGVARI ÁRSINS (Sígild- og samtímatónlist)Ágúst Ólafsson - Ágúst flutti Des Knaben Wunderhorn af einstöku næmi og listfengi í Salnum í Kópavogi í október.Gissur Páll Gissurarson - Lyrísk rödd hans naut sín til fulls í eftirminnilegri túlkun á Rodolfo í La Boheme, einu af stærstu tenórhlutverkum óperubókmenntanna.Hrólfur Sæmundsson - Glæsileg baritónrödd hans naut sín afar vel í hlutverki Shaunards í La Boheme í vor og var túlkun hans sérlega sannfærandi.Kristinn Sigmundsson - Kristinn kom fram á tónleikum ásamt Víkingi Heiðari Ólafssyni í nóvember. Kristinn söng þar valin verk eftir Schumann, Mahler og Wolf og líður sú túlkun þeim sem á hlýddu seint úr minni.Viðar Gunnarsson - Heillandi og mikilfengleg túlkun á hinum valdsmannslega herforingja Ferrando í Il Trovatore í haust.17. SÖNGKONA ÁRSINS (Sígild- og samtímatónlist)Alina Dubik - Heilsteypt og sannfærandi túlkun á Azucenu í uppfærslu Íslensku óperunnar á Il Trovatore í haust þar sem dökk og mjúk rödd hennar passaði hlutverkinu vel.Elsa Waage - Elsa söng hlutverk Azucenu í uppfærslu Íslensku óperunnar á Il Trovatore í haust. Sterk nærvera hennar og túlkun á sviði var eftirminnileg í alla staði.Herdís Anna Jónasdóttir - Ungstirnið Herdís Anna Jónasdóttir sópran var atkvæðamikil í íslensku tónlistarlífi á árinu. Hún söng meðal annars hlutverk Musettu í uppfærslu Íslensku óperunnar á La Boheme í vor.Hulda Björk Garðarsdóttir - Hulda Björk söng á árinu tvö af helstu sópranhlutverkum óperubókmenntanna, Mimi í La Boheme og Leonóru í Il Trovatore, og gerði það frábærlega.Þóra Einarsdóttir - Þóra kom víða við í íslensku tónlistarlífi í ár. Hún söng meðal annars hlutverk Mimiar í La Boheme og frammistaða hennar í einu af einsönghlutverkum c-moll messu Mozarts var framúrskarandi.18. HLJÓMPLATA ÁRSINS (Sígild- og samtímatónlist)Abel – Nordic Affect og Georgia Browne. Þessi fyrsti geisladiskur Nordic Affect hópsins er afrakstur mikilla rannsókna. Brakandi ferskur flutningur á verkum þessa lítt þekkta tónskálds.Klarinettukonsertar - Einar Jóhannesson og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Einstakur vitnisburður um einn af allra bestu listamönnum þjóðarinnar í einleikshlutverki í verkum eftir Mozart, Weber, Debussy og Jón Nordal.Ljóð/Lieder/Songs – Auður Gunnarsdóttir og Andrej Hovrin. Auður hefur glæsilega rödd og er túlkun hennar á tónlist ólíkra tónskálda fagmannleg og músikölsk.Stafnbúi - Steindór Andersen og Hilmar Örn Hilmarsson. Á þessum hljómdiski flytur Steindór Andersen tólf stemmur á sinn einstaka hátt við heillandi útsetningar Hilmars Arnar.Vetrarferðin - Kristinn Sigmundsson og Víkingur Heiðar Ólafsson. Hér fær meistaraverk Franz Schuberts, ljóðaflokkurinn Vetrarferðin, einhverja bestu mögulegu meðhöndlun sem hægt er að hugsa sér.
Mest lesið Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Erlent Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Innlent Bandaríkjamenn gera loftárásir á Íran Erlent Átta látnir hið minnsta eftir að kviknaði í loftbelg Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Erlent Sigríður fannst heil á húfi Innlent Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Innlent Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Innlent Fleiri fréttir „Við lifum ekki á friðartímum“ Krísa í Kattholti: Fólk losar sig við ketti á sumrin Íranir án bandamanna, svimandi hátt verðlag og krísa í Kattholti Sögulega lítið fylgi Framsóknar, veiðigjöld og Íran Vara við því að ölvuðu fólki sé boðið að sitja að sumbli í Lystigarðinum Tveir handteknir grunaðir um eignaspjöll Tókst að leysa alla hvalina úr fjörunni Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Sjá meira
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent