Innlent

Kveikt á jólatrénu í Garðabæ

Á morgun laugardag, verða ljósin tendruð á jólatrénu á Garðatorgi í Garðabæ. Jólatréð er gjöf frá Asker, vinbæ Garðabæjar í Noregi, og er þetta í fertugasta og þriðja sinn sem Garðbæingar fá þessa vinasendingu þaðan. Athöfnin hefst klukkan fjögur á morgun og verður þéttskipuð dagskrá, að því er fram kemur í tilkynningu frá Garðabæ.

„Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar leikur fyrir gesti og Halldóra Ingibergsdóttir varaformaður Norræna félagsins í Garðabæ, býður gesti velkomna. Sendiherra Noregs á Íslandi Dag Vernø Holter afhendir tréð fyrir hönd Asker og Áslaug Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar, veitir trénu viðtöku. Skólabörn úr Barnaskóla Hjallastefnunnar syngja nokkur lög fyrir viðstadda og að lokum koma jólasveinar til byggða og flytja jólalög," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×