Mikilvægt framlag til mannréttinda 29. júní 2012 04:30 Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra og formaður nefndarinnar, kynnti tillögur nefndarinnar í gær. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra héldu einnig ávörp. fréttablaðið/ernir
Stefnt er að því að frumvarp að nýjum heildarlögum um málefni útlendinga verði lagt fram á Alþingi í haust. Þetta kom fram á fundi í gær þar sem skýrsla nefndar, sem fjallað hefur um málefni útlendinga utan Evrópska efnahagssvæðisins, var kynnt. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir tillögurnar sem kynntar voru í gær mjög mikilvægar. Hann segist vilja að frumvarp verði orðið að lögum fyrir kosningar. „Þetta þýðir að það þyrfti að koma fram í haust, alveg tvímælalaust.“ Hann segir mikilvægt að skýrslan fari nú í opið umsagnarferli jafnframt því sem hafist verði handa við gerð frumvarps. „Ég held að það væri óráð að skilja þetta að vegna þess að okkur liggur á. Við þurfum að reyna að fá niðurstöðu eins fljótt og hægt er.“ Í tillögum nefndarinnar, sem Halla Gunnarsdóttir stýrði, eru lagðar til ellefu tillögur að breytingum. Fyrir það fyrsta er lagt til að sett verði heildarlög um útlendinga, sem verði á ábyrgð innanríkisráðuneytisins. Hingað til hafa lögin verið tvískipt og atvinnuleyfi heyrt undir velferðarráðuneyti á meðan dvalarleyfi heyra undir innanríkisráðuneytið. Lagt er til að dvalarleyfisflokkum verði breytt og réttindasöfnun útlendinga jöfnuð meðal dvalarleyfishafa. Þannig fái þeir sjálfkrafa atvinnuleyfi nema í undantekningartilvikum skammtímadvalarleyfa. Þá verði það meginstefna að útlendingar sem hér hafa dvalarleyfi fái heimild til að fá fjölskyldur sínar til sín. Í málefnum hælisleitenda og flóttamanna er lagt til að lögfest verði bann við refsingum vegna ólöglegrar komu til landsins. Jafnframt munu fyrstu hælisviðtöl fara fram hjá Útlendingastofnun en ekki lögreglu eins og verið hefur. Að sama skapi leggur nefndin til að stofnuð verði sjálfstæð úrskurðarnefnd, að minnsta kosti í málefnum hælisleitenda. Þá verði komið á sérstakri málsmeðferð vegna hælisleitenda á barnsaldri, og hælisleitendur eiga að geta valið búsetu sína án þess að það hafi áhrif á þjónustuna sem þeir njóta. „Eftir veru mína í ráðuneytinu, ráðuneyti dómsmála og mannréttinda, hef ég sannfærst um að ef okkur tekst að ráða bót á þeim vanköntum og brotalömum sem er að finna í lagasmíðinni þá væri það eitt mikilvægasta framlag okkar til mannréttindamála sem ég get hugsað mér,“ segir Ögmundur. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira