Innlent

Hróplegur munur á slætti

Grasið í Seltjarnarnesbæ er eins og golfvöllur en grasið í Reykjavík þarf sárlega að slá. fréttablaðið/pjetur
Grasið í Seltjarnarnesbæ er eins og golfvöllur en grasið í Reykjavík þarf sárlega að slá. fréttablaðið/pjetur
Grasflötin á Eiðisgranda tekur stakkaskiptum við bæjarmörk Reykjavíkur og Seltjarnarness. Flötin Seltjarnarnesmegin er slegin en Reykjavíkurmegin fá njólarnir og úr sér sprottið grasið að vera í friði fyrir sláttuvélunum.

„Þetta er á ábyrgð Vegagerðarinnar. Hún tekur þrjá slætti við allar stofnbrautir. Næsta umferð fer bráðlega í gang,“ segir Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar.

Það eru hins vegar starfsmenn Seltjarnarnesbæjar sem slá grasið sem vex innan þeirra bæjarmarka.

„Við sláum þegar þurfa þykir. Þegar grasið fer að spretta þá sláum við bara. Við höfum þetta svolítið í hendi okkar, en það fer líka eftir veðurfari hversu oft við sláum. Svona svæði sláum við töluvert oft. Við viljum hafa þetta fínt,“ segir Steinunn Árnadóttir, garðyrkjustjóri Seltjarnarness.

Bjarni segir borgaryfirvöld hafa sparað í slætti undanfarin ár.

„Það voru farnar fjórar til fimm umferðir hérna áður fyrr. Á vissum stöðum, til dæmis í Hljómaskálagarðinum, skrúðgörðum og svoleiðis, er þessu enn þá haldið við á svipaðan hátt og áður. Það er á þessum túnum við umferðaræðarnar sem sparnaðurinn er tekinn.“- ktg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×