Nasa ekki rifið - ASK vann miðbæjarsamkeppnina Jón Hákon Halldórsson skrifar 29. júní 2012 16:34 Vinningtillagan. Rauði flöturinn eru nýbyggingar sem verða gerðar.
Engar byggingar verða rifnar niður við uppbyggingu á Austurvelli og á Ingólfstorgi, samkvæmt tillögu um uppbyggingu í miðborginni sem fékk fyrstu verðlaun í arkitektasamkeppni sem efnt var til. Verðlaunaafhendingin fór fram nú síðdegis. Samkvæmt tillögunni stendur ekki til að rífa veitingastaðinn Nasa en húsinu og salnum verður gjörbreytt. Samkvæmt tillögunni er uppbyggingu skipt í þrjá áfanga og hefur hver áfangi skýrt hlutverk. Í Vallarstræti verður fjölbreytt verslunar- og þjónustuhúsnæði. Markmiðið er að styrkja þjónustu í hjarta miðborgarinnar, auðga mannlíf og skapa áhugverða upplifun fyrir vegfarendur. Hrynjandi og form nýbygginga fellur almennt vel að nálægðri byggð, segir í niðurstöðum dómnefndar um tillöguna. Samkomusalur við Thorvaldsensstræti 2 er endurbyggður sem skemmti- og ráðstefnusalur. Innangengt verður í veitingasal hótelsins. Landssímahúsið er allt skipulagt sem hótelbygging með viðbættri þakhæð og nýbyggingu við Kirkjustræti. Aðalinngangur í hótel er frá Kirkjustræti og innra skipulag hótels skapar tengsl við nærliggjandi almenningsrými, Víkurgarð og Austurvöll. Uppbygging á syðri hluta Ingólfstorgs, þar sem Hótel Ísland stóð, skapar nýja sýn og uppbyggingarmöguleika sem vert er að skoða. Tillagan gerir ráð fyrir að þar verði menningarhús. Höfundar vinningstillögurnar eru arkitektarnir Þorsteinn Helgason og Gunnar Örn Sigurðsson. Ítarleg umfjöllun um tillögurnar verður í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Mest lesið Féll í Jökulsárlón Innlent Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Fleiri fréttir Skjálftahrina við Eldey Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Lyfjafræðingar afar ósáttir við fyrirhugaða lagabreytingu og boða aðgerðir ef ekki rætist úr Féll í Jökulsárlón Dæmi um leikskóla þar sem enginn starfsmaður talar íslensku Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Sjá meira