Óttast mengun á framkvæmdatíma 7. september 2012 03:30 Gísli Marteinn Baldursson segir að í forsögn skipulagsráðs hafi verið gengið út frá því að ásýnd gamla Landspítalans héldist óbreytt. Freklega væri gengið gegn því í tillögunum. fréttablaðið/vilhelm
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir áhyggjur íbúa vegna aukinnar umferðar við nýjan Landspítala réttmætar. Furðulítil grein hafi verið gerð fyrir umferðaraukningunni og ráðstafanir til að reyna að takmarka þær séu ekki nógu sannfærandi. „Þetta rosalega byggingarmagn dregur náttúrulega til sín mun meiri umferð en ef við myndum byggja hóflega við spítalann eins og ég hef lagt til.“ Gísli bendir á að bílastæðahúsin, sem tillagan gerir ráð fyrir, séu ein og sér á stærð við tæplega tvo Borgarspítala. Hann telur hins vegar að byggja eigi við spítalann á Hringbraut, en hugmyndin geri ráð fyrir allt of miklu byggingarmagni. Hjálmar Sveinsson, varaformaður skipulagsráðs, segir að aukinni umferð við spítalann verði mætt með því að draga úr umferð við Háskóla Íslands (HÍ) og hjá starfsmönnum Landspítalans. Gert sé ráð fyrir að gjaldskylda verði í öll bílastæði við þessar stofnanir, sem og bílastæði á milli gömlu og nýju Hringbrautar. Hjálmar bendir á að um sextíu prósent nemenda við HÍ komi á einkabílum og ef takist að minnka það í fimmtíu prósent, sem væri engu að síður mjög mikið, mundi draga verulega úr umferð um Miklubraut. En hvað með aðra háskóla, svo sem Háskólann í Reykjavík (HR)? „Við viljum líka vinna að því að þar verði gjaldskylda. Við teljum það ófært og tímaskekkju að hafa þetta gríðarlega flæmi ókeypis bílastæði við HR.“ Gísli segir einnig að engar aðgerðir hafi verið kynntar til mótvægis við þá miklu umferð sem verði á framkvæmdatímanum, en hann geti staðið í mörg ár. „Þetta eru náttúrulega svakalegar framkvæmdir og ég veit ekki hversu mörgum tonnum af rúmmetrum verður mokað upp og ekið burt, eða hvaða leið á að fara með þá. Það þarf að koma í veg fyrir að ryk fjúki við flutninga og úr grunninum yfir íbúa Hlíðahverfis, nóg er nú samt um svifrykið þar.“kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira