"Hann var alltaf glaður, ótrúlega fyndinn og einstakur" Karen Kjartansdóttir. skrifar 9. september 2012 18:30
Átján ára Íslendingur var myrtur í Tulsa í Óklahómafylki í gærmorgun. Bandarískir fjölmiðlar segja að ekkert bendi til þess að morðinginn hafi þekkt piltinn og hann hafi því verið fórnarlamb tilgangslauss fólskuverks. Vinir hans úr Hagaskóla hittust í dag. Þeir segja hann hafa verið einstaklega skemmtilega manneskju. Pilturinn hét Kristján Hinrik Þórsson, kallaður Hinrik, og hafði verið búsettur stóran hluta ævi sinnar í Bandaríkjunum. Aðfaranótt laugardagsins var hann staddur sem farþegi í bíl 37 ára félaga síns á bílastæði fyrir utan verslun. Bandarískir fjölmiðlar hafa eftir vitnum að þar hafi maður komið aðvífandi haldið því fram að þeir hefðu næstum ekið yfir sig. Við það hafi mennirnir byrjað að deila og skyndilega hafi maðurinn dregið upp skammbyssu og skotið fjölda skota inn í bílinn. Lögreglan í Tulsa leitar morðingjans og er nú að fara yfir upptökur úr öryggismyndavélum á svæðinu. Bandarískir fjölmiðlar segja að ekki sé talið að mennirnir hafi þekkst. Í Vesturbænum hittust gamlir skólafélagar úr Hagaskóla til að minnast félaga síns. Flestum þeirra bárust fréttir af andláti Hinriks þegar þeir voru staddir í afmælisboði í gærkvöldi. „Síðan fékk vinur minn símtal, frá vini okkar sem hafði séð þetta á fréttamiðli úti," segir Ólafur Gunnar Daníelsson, vinur Hinriks. „Við náttúrulega brotnuðum saman. Sátum og bara alveg brjálaðir okkur leið svo illa.Við vorum bara svo ótrúlega reiðir og fannst þetta svo ótrúlega ósanngjarnt." Svona lýsir Ólafur Gunnar vinur hans honum. „Hann var alltaf glaður, hann var ótrúlega fyndinn og í raun mjög einstakur. Ég veit að minnsta kosti ekki um neinn eins og hann. Hann var bara alltaf glaður og skemmtilegur og alltaf hress. Við töluðum saman fyrir örfáum dögum og þá var hann að segja að hann vildi koma til Íslands aftur." Ólafur segir Hinrik hafa verið vinsælan félaga. „Hann átti svo marga góða vini hérna. Við strákarnir allir úr Vesturbænum við vorum alltaf saman." Er eitthvað sem þú vilt bæta við? „Bara til fjölskyldu hans. Ég votta þeim samúð mína, þetta er alveg hrikalegt."
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira