Alþjóðleg handtökuskipun á hendur Íslendingi GRV og BBI skrifar 26. júní 2012 19:28
Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Íslendingi sem grunaður er um aðild að umfangsmiklu kókaínsmygli hingað til lands. Tveir aðrir hafa setið í gæsluvarðhaldi í mánuð vegna málsins. Lögreglan verst allra frétta af málinu sem virðist vera umfangsmikið. Það hófst á því að íslenskt par á sjötugsaldri var stöðvað við komuna til landsins, við hefðbundið eftirlit í Leifsstöð. Fólkið, sem var að koma frá Danmörku reyndist vera með mikið magn af kókaíni meðferðis sem var vandlega falið í ferðatösku þeirra. Ekki hefur fengist upp gefið um hve mikið magn er að ræða en lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins.Mynd/interpol.intFólkinu hefur nú verið sleppt úr haldi lögreglu en sama dag og málið kom upp, þann 25. maí síðastliðinn, handtók lögreglan konu á þrítugsaldri og karlmann á fertugsaldri og eru þau grunuð um aðild að málinu. Þau hafa setið í gæsluvarðhaldi frá þeim tíma og krafðist lögregla framlengingar á varðhaldinu síðastliðinn föstudag. Sú krafa bíður nú úrskurðar Hæstaréttar. Þessu til viðbótar Íslendingi, sem talinn er eiga aðild að málinu, nú leitað erlendis. Alþjóðleg handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur honum. Við rannsóknina hefur einnig verið farið í nokkrar húsleitir þar sem nokkurt magn fíkniefna hefur fundist. Á myndinni hér til hliðar er maður að nafni Steinar Aubertsson. Myndin er tekin af heimasíðu interpol. Maður þessi var settur í flokk eftirlýstra á síðunni í dag. Lögregla hefur ekki viljað staðfesta að hann tengist kókaínsmyglinu en yfirgnæfandi líkur eru á að þetta sé maðurinn sem lýst er eftir vegna málsins.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Sjá meira