Ramune með flensu | Dagný sneri sig á ökkla Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. desember 2012 14:19 Ramune í leik með Haukum 2010. Mynd/Anton
Ramune Pekarskyte og Dagný Skúladóttir hvíldu þegar íslenska kvennalandsliðið í handknattleik lagði Tékka í síðari æfingaleik þjóðanna í Tékklandi í gær. Ramune, sem skoraði tvö mörk í fyrri leiknum gegn Tékkum á föstudaginn, er með flensu og lá uppi á hóteli á meðan á leik stóð. „Hún er búin að vera í einangrun en fór á pensilínkúr í gær og getur vel verið að hún geti aðeins verið með í dag. Við sjáum til," sagði Ágúst Jóhannsson landsliðsþjálfari í samtali við Vísi í dag. Íslenska liðið er komið til Serbíu en liðið mætir heimakonum í æfingaleik í kvöld. Leikurinn verður í óformlegra lagi og líkur á því að leiktíminn verði styttri en gengur. „Leikurinn er í raun æfing. Bara aðeins til að hreyfa mannskapinn," sagði Ágúst sem vonast til þess að Dagný Skúladóttir verði klár í slaginn þegar Ísland mætir Svartfjallalandi í fyrsta leik liðsins á þriðjudag. Dagný sneri sig á ökkla í tapinu gegn Tékkum á föstudagskvöld og hefur verið í umönnum sjúkraþjálfara liðsins síðan. „Samkvæmt sjúkraþjálfurunum verður hún klár á þriðjudaginn. Hún á að byrja að æfa á morgun þegar við æfum í keppnishöllinni. Ég geri ekki ráð fyrir öðru en að hún verði klár á þriðjudaginn. Við stefnum á að hún verði klár þá," sagði Ágúst.
Mest lesið Svarar Brynjari fullum hálsi: „Óboðleg tilraunastarfsemi á börnum í íþróttum“ Körfubolti Í beinni: Fram - Valur | Bæta Framarar við fingrum á bikarinn? Handbolti „Varð fljótt að hinni verstu martröð“ Sport Leik lokið: Breiðablik - Valur 2-1 | Blikar á toppinn Íslenski boltinn Hættir á BBC strax á sunnudaginn: „Ég geri mér grein fyrir uppnáminu sem ég olli“ Enski boltinn Tveir Vestramenn fluttir með sjúkrabíl eftir leik í gær Íslenski boltinn Leik lokið: Stjarnan - Víkingur 2-2 | Hornspyrnur urðu heimamönnum að falli Íslenski boltinn Reiknar ekki með Shaq í oddaleiknum í Síkinu: „Vesen með nýrun“ Körfubolti Þeir bestu (20.-16. sæti): Glæsilegur endir gamalla manna og dönsku demantarnir í Kaplakrika Íslenski boltinn Biður liðsfélagana afsökunar eftir að hafa selt ólympíugullið Sport Fleiri fréttir Ómar Ingi hélt upp á framlengingu á samningi með stórleik Í beinni: Fram - Valur | Bæta Framarar við fingrum á bikarinn? Framarar fengu drjúgan tíma til að sóla sig um helgina Dagur bikarmeistari eftir maraþon vítakeppni Sigur hjá Kolstad í fyrsta leik úrslitanna Óðinn markahæstur í fyrsta leik úrslitaeinvígisins Löggan óskaði Hildigunni til hamingju Mögnuð stemmning þegar Valskonur tryggðu sér Evrópubikarinn Sýning hjá Viktori Gísla í stórsigri Wisla Plock „Ég ætla að leyfa stelpunum að njóta í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Táraðist vegna ólýsanlegrar gleði „Ég byrjaði bara að gráta, ég réði ekki við neitt“ Arnór stýrði sínum mönnum í undanúrslit „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Sjá meira
Þeir bestu (20.-16. sæti): Glæsilegur endir gamalla manna og dönsku demantarnir í Kaplakrika Íslenski boltinn
Þeir bestu (20.-16. sæti): Glæsilegur endir gamalla manna og dönsku demantarnir í Kaplakrika Íslenski boltinn