Kveikt á Oslóartrénu á sunnudaginn 30. nóvember 2012 10:44 Oslóartréð við Austurvöll er glæsilegt að vanda. Þetta er tréð sem sett var upp árið 2009 en það var kveikt í því í Búsáhaldarbyltingunni svokölluðu. Mynd/Stefán Karlsson
Ljósin á Oslóartrénu verða tendruð á sunnudaginn á milli klukkan 16 og 17. Íbúar Oslóar færðu Reykvíkingum fyrsta grenitréð að gjöf fyrir rúmum sextíu árum en tréð hefur ævinlega verið sett upp á Austurvelli. Borgarbúar hafa lengi fagnað þessari vinargjöf fyrsta sunnudag í aðventu með hátíðlegum söng og skemmtilegum uppákomum. Dagskráin hefst klukkan 15:30 með leik Lúðrasveitar Reykjavíkur en í kjölfarið tekur Dómkórinn við og syngur nokkur lög undir stjórn Kára Þormar. Dag Wernø Holter sendiherra Noregs á Íslandi og Tone Tellevik Dahl formaður heilbrigðis- og félagsmálanefndar Oslóarborgar afhenda Reykvíkingum tréð að gjöf rétt um kl.16. Borgarstjóri, Jón Gnarr flytur þakkarávarp og hinn 6 ára norsk-íslenski Jörundur Ísak Stefánsson fær þann heiður að tendra ljósin á trénu Aðrir góðir gestir birtast einnig á sviðinu við Austurvöll. Skáldið Bragi Valdimar Skúlason frumflytur kvæði um Stúf og Karíus og Baktus kíkja við ofan úr Þjóðleikhúsi en þeir hlakka mikið til jólanna. Þá líta, Hurðaskellir, Gluggagægir og Stúfur við, en þeir hafa laumað sér í bæinn til að segja börnunum sögum og syngja jólalög. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Eimskip hafi frá upphafi flutt Oslóartréð til Reykjavíkur, borgarbúum að kostnaðarlausu. „Borgarstjóri, Jón Gnarr tók þátt í að fella tréð við í Solemskogen við Grefsen í Osló þann 7. nóvember s.l. en það var flutt frá Fredrikstad til Reykjavíkur. Tréð er rúmlega 12 metra hátt og skreytt fögrum ljósum, jólastjörnu og jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra en í ár er það Stúfur sem prýðir hann. Stúfur er sjöundi óróinn í jólasveinaseríu Styrktarfélagsins og rennur allur ágóði af sölu hans til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Í óróanum fer saman íslenskur menningararfur, ritsnilld og hönnun - ásamt mikilsverðu málefni. Bragi Valdimar Skúlason og Þórunn Árnadóttir leggja félaginu lið með túlkun sinni á Stúfi - Bragi Valdimar yrkir málið og Þórunn í stálið en nýtt kvæði um Stúf verður frumflutt á Aðventuhátíðinni. Dagskrá hátíðarinnar verður túlkuð á táknmáli, heitt kakó og kaffi mun verma kalda kroppa og bílastæðahúsið í Ráðhúsinu verður opið til að auðvelda gestum aðgengi að hátíðarsvæðinu. Kynnir er Gerður G. Bjarklind. "
Mest lesið Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Veður Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Sjá meira