Innlent

Hallgrímur og Guðmundur Andri tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hallgrímur Helgason er tilnefndur fyrir bók sína, Konan við 1000º - Herbjörg María Björnsson segir frá.
Hallgrímur Helgason er tilnefndur fyrir bók sína, Konan við 1000º - Herbjörg María Björnsson segir frá. Mynd/GVA
Hallgrímur Helgason og Guðmundur Andri Thorsson hafa báðir verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hallgrímur er tilnefndur fyrir bókina Konan við 1000º - Herbjörg María Björnsson segir frá en Guðmundur Andri er tilnefndur fyrir bókina Valeyrarvalsinn.

Dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs velur verðlaunahafann og hann verður tilkynntur á þingi Norðurlandaráðs í Ósló í lok október á næsta ári. Verðlaunin nema 350.000 dönskum krónum eða um sjö milljónum íslenskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×