Sýknaður af ákæru um innflutning af fíkniefnum - Fær 400 þúsund í bætur fyrir varðhald Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. nóvember 2012 14:34 Maðurinn sat í varðhaldi dögum saman.
Karlmaður sem var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna innflutnings á 4-flúoramfetamíni, sem er náskyld amfetamíni, hefur fengið greiddar bætur frá ríkinu vegna gæsluvarðhaldsins. Málavextir voru þeir að annar maður var handtekinn handtekinn í Leifsstöð við komu til Íslands frá Þýskalandi þann 15. desember 2009, en sá var með rétt rúmlega 3,7 kíló af 4-flúoróamfetamíni falin í fölskum botni í ferðatösku sem hann hafði meðferðis. Við skýrslutöku hjá lögreglu bar maðurinn að hann hefði flutt efnin til landsins að beiðni félaga síns sem væri eigandi efnanna. Bar hann einnig að hann hefði haldið að þetta væri 1 kílógramm af kókaíni. Hann bar jafnframt að félagi sinn hefði sagst vera búinn að borga fyrir fíkniefnin og að þeir myndu báðir hagnast á innflutningnum. Reynt var ítrekað að hafa uppi á félaga hans í desember 2009. Hinn 28. desember 2009 hafði félaginn síðan samband símleiðis við lögreglufulltrúa í fíkniefnadeild lögreglustjórans á Suðurnesjum. Var félaginn hvattur til að gefa sig fram við lögreglu og honum tilkynnt að hann væri eftirlýstur og yrði handtekinn hvar sem til hans næðist. Félaginn mætti í skýrslutöku á lögreglustöðina í Keflavík, 4. janúar 2010. Við skýrslutökuna neitaði félaginn sök. Hann neitaði allri aðild að umræddum innflutningi en kvaðst þekkja manninn sem handtekinn var í flugstöðinni. Þegar skýrslutökunni lauk var félaginn handtekinn og gert að sæta gæsluvarðhaldi frá 5 til 12. janúar 2010. Lögreglan lét síðan efnagreina og styrkleikamæla efnin og fékk fljótlega þá niðurstöðu að 4-flúoróamfetamín væri náskylt amfetamíni að gerð. Það væri ávana- og fíkniefni, en hins vegar væri það ekki á lista um ávana- og fíkniefni sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði Félaginn heldur því fram að lögreglustjóranum á Suðurnesjum hafi því verið kunnugt um það frá 7. janúar 2010 að efnið 4-flúoróamfetamín var ekki á lista yfir fíkniefni sem bönnuð eru á íslensku yfirráðasvæði. Hann hélt því fram að kynna hefði átt stefnanda niðurstöðu matsgerðarinnar og að leysa hann án tafar úr gæsluvarðhaldi. Hann hélt því fram að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi haldið matsgerðinni leyndri fyrir sér og manninum sem handtekinn var í flugstöðinni þegar matsgerðin var lögð fram við gæsluvarðhaldsfyrirtöku Michaels. Mennirnir tveir voru sýknaðir fyrir innflutning á efninu í Héraðsdómi Reykjaness og var málinu ekki áfrýjað. Maðurinn krafðist því bóta úr ríkissjóði fyrir gæsluvarðhaldsvistina og var honum dæmdar 400 þúsund krónur.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira