Fótalaus bílstjóri endurnýjaði meiraprófið Karen Kjartansdóttir skrifar 30. nóvember 2012 22:46
Stætóbílstjóri sem missti báða fætur í slysi fyrir sjö árum stóðst hæfnispróf og heldur meiraprófinu sínu. Hann langar að fara vinna aftur en er ekki viss að hann treysti sér í fullar vaktir og er auk þess efins um að fólk vilji fá fólk eins og hann til starfa. 19. ágúst árið 2005 var Björn Hafsteinsson við vinnu sína sem strætóbílstjóri. Á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Suðurlandsbrautar ók vörubíll yfir á rauðu ljósi og lenti á strætónum. Tíu manns voru um borð en allir sluppu nær ómeiddir nema Björn. „Það var nú svo skrítið að ég missti aldrei meðvitund. Ég sat þarna á götunni og hélt á stúfnum, eða stúfunum. Svo kom lögreglumaður, tók af sér beltið sitt og batt um fótinn,“ segir Björn. Báðir fótleggir voru teknir af Birni fyrir neðan hné og eftir langa sjúkrahúsvist tók við ströng endurhæfing. Björn segist ánægður með nýju fæturna en þyki sárt að hafa verið kippt út af vinnumarkaðinum fyrir aldur fram. Hann ákvað því að endurnýja meiraprófið sitt og stóðst hæfnispróf. Í viðtali við Fréttatímann í dag að hann hefði ekki geta hugsað sér að missa það eftir að hafa haft það í þrjátíu ár. En býst hann við að komast í vinnu? „Það vill enginn svona menn í vinnu,“ segir hann.Finnur þú fyrir svona miklum fordómum? „Nei en maður bara heldur það. Maður getur ekki gert allt sko,“ segir hann. Björn segist ánægður með gervifæturna frá Össurri og almennt líða nokkuð vel. Hann verði þó að taka lyf við svokölluðum draugaverkjum sem lýsa sér í verkjum í útlimum sem eru ekki lengur til staðar. Hann segir þó mikilvægast að leyfa sér ekkert volæði.
Mest lesið Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs Sjá meira