Innlent

Jón Gnarr fékk dúkku af sér sjálfum: Þetta er mini me!

Jón Gnarr með eftirmyndina í fanginu.
Jón Gnarr með eftirmyndina í fanginu.
Marta M. Niebieszczanska, fréttamaður pólska fréttavefsins Informacje, tók viðtal við Jón Gnarr borgarstjóra í gær, en þá ræddi hún við borgarstjóra um starfið, fjölmenningu, samráðsvefinn Betri Reykjavík og fleira.

Þá ræddu þau hvernig borgarstjóra gangi að flétta saman starf sitt sem æðsti embættismaður borgarinnar og vera listamaður.

Í lok viðtalsins afhenti Marta borgarstjóra brúðu, eftirlíkingu af honum sjálfum, í bleiku jakkafötunum sem hann klæddist í tilefni af baráttudegi gegn brjóstakrabbameini.

Brúðuna gerði pólskur listamaður, Tadeusz Wnęk, en hann býr í borginni Żywiec og hefur honum tekist vel til því hann gerði hana alfarið eftir ljósmynd. Tadeusz er Íslandsvinur ferðaðist um landið í haust ásamt 2 vinum sínum.

Brúðan kom borgarstjóra skemmtilega á óvart samkvæmt frétt um málið á vef borgarinnar, en þar kemur fram að borgarstjórinn hafi sagt samstundis „Þetta er mini me!"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×