Innlent

Stal veiðistöng og úlpu

Konan stal meðal annars úlpu.
Konan stal meðal annars úlpu.
Fertug kona var dæmd í tveggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi vegna þjófnaðar. Konan stal meðal annars úlpu úr verslun á Hafnarstræti í desember árið 2010 en andvirði hennar voru tæplega 40 þúsund krónur.

Þá fór hún inn í geymslu í sameign fjölbýlishúss í Höfðabakka í febrúar á síðasta ári. Þar stal hún meðal annars veiðidóti, leikjatölvu og útivistarfatnaði.

Konan hefur nokkrum sinnum verið dæmd fyrir hegningarlagabrot áður, en síðast var hún dæmd í júlí árið 2010 fyrir gripdeild. Þá var skilorðsdómur sem hún hlaut árið áður dæmdur upp. Nú rýfur hún aftur skilorð og hefur fyrri refsidómur ítrekunaráhrif, var konan því dæmd í óskilorðsbundið fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×