Innlent

Vímaðir ökumenn stöðvaðir

BBI skrifar
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvað ökumenn undir áhrifum vímuefna þrisvar sinnum á síðustu dögum. Þeir voru allir handteknir.

Síðustu nótt var karlmaður á þrítugsaldri stöðvaður og færður á lögreglustöð. Hann viðurkenndi að hafa verið undir áhrifum vímuefna undir stýri.

Annar ökumaður viðurkenndi einnig neyslu fíkniefna. Sá var talsvert yngri og við húsleit á dvalarstað hans fundust bæði sterar og kannabis.

Þriðji ökumaðurinn viðurkenndi að hafa neytt fíkniefna skömmu áður en lögregla stöðvaði akstur hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×