Málsmeðferð stjórnarskrárfrumvarpsins ófullnægjandi BBI skrifar 28. nóvember 2012 21:15 Ólöf Nordal Mynd/GVA
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis mótmæla harðlega málsmeðferð meirihluta nefndarinnar vegna breytinga á stjórnarskrá. Þeim Birgi Ármannssyni og Ólöfu Nordal þykir uggvænlegt hve stuttur tími er veittur til að skila inn umsögnum um frumvarpið, óskiljanlegt hvers vegna ekki það er ekki sent til formlegrar umsagnar og ófullnægjandi að senda frumvarpið til Feneyjanefndarinnar.Feneyjanefndin Ákveðið hefur verið að senda frumvarpið til Feneyjanefndarinnar til umsagnar. Sjálfstæðismennirnir telja að frumvarpinu muni ekki fylgja nægileg gögn. „Sú hugmynd að senda til Feneyjarnefndarinnar aðeins hluta úr greinargerð frumvarps til stjórnarskipunarlaga án nokkurra frekari gagna er alveg ófullnægjandi," segja þau í sameiginlegri yfirlýsingu. „Það sem við höfum áhyggjur af í því sambandi er fyrst og fremst það að nefndin fái ekki næg gögn og upplýsingar um málið, en vonandi verður úr því bætt. Við höfum hins vegar allan tímann lagt áherslu á að álit Feneyjanefndarinnar eigi að vera viðbót við þá umfjöllun, sem nauðsynlegt er að eigi sér stað hér innanlands - hún getur aldrei komið í stað ítarlegrar og vandaðrar umfjöllunar innlendra sérfræðinga," segir Birgir.Umsagnarferlið Frumvarpið verður ekki sent formlega til umsagnar eins og venja er heldur auglýst eftir umsögnum. Það þykir tvímenningunum óskiljanlegt og telja réttast að leita formlega eftir umsögnum.Frestir Væntanlegir umsagnaraðilar fá aðeins 14 daga frest til að skila inn umsögnum. Það þykir ekki mikið. „Ófært er að skila inn umsögnum á svo stuttum tíma," segja sjálfstæðismennirnir. Í útvarpsfréttum Bylgjunnar sagði Valgerður Bjarnadóttir að ekkert væri athugavert við að Feneyjanefndin skilaði inn umsögnum um frumvarpið og að nefndin hafi gefið út álit á stjórnarskrárdrögum fleiri ríkja.Birgir Ármannsson.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira