Innlent

Unglingar í Grafarvogi safna fyrir fjölskyldu látins vinar

JHH skrifar
Yfirlitsmynd af Grafarvogi.
Yfirlitsmynd af Grafarvogi.
Unglingar og félagsmiðstöðvar á vegum frístundamiðstöðvarinnar Gufunesbæjar í Grafarvogi munu standa fyrir Góðgerðaviku til styrktar fjölskyldu Davíðs Arnar Arnarssonar dagana 4. - 7. desember. Góðgerðaráð unglinganna sér um framkvæmd og útfærslu vikunnar í samstarfi við starfsfólk félagsmiðstöðvanna en þær eru Dregyn, Fjörgyn, Púgyn og Sigyn.

Meginmarkmið góðgerðavikunnar er að unglingar kynni sér góðgerðamálefni og vakni til vitundar um það hvernig þeir geta komið öðrum til hjálpar og haft uppbyggileg áhrif á samfélag sitt, segir í tilkynningu frá félagsmiðstöðunum. Góðgerðaráðið hefur undanfarna tvo mánuði undirbúið þessa viku og hafa unglingarnir skipulagt tvo stóra viðburði. Fyrst ber að nefna kaffihúsakvöld fyrir alla Grafarvogsbúa þann 4. desember í Fjörgyn. Þar munu koma fram þekktir tónlistarmenn og grínistar. Auk þess verða seldir happdrættismiðar og léttar veitingar. Allir sem hafa áhuga á að styrkja gott málefni eru hjartanlega velkomnir. Hinn viðburðurinn er ball í Sigyn fyrir alla unglinga í Grafarvogi þar sem vinsælar poppstjörnur troða upp.

Allir tónlistarmenn og grínistar sem fram koma á Góðgerðarviku gefa vinnu sína og því mun allur ágóði sem safnast renna óskiptur til fjölskyldu Davíðs Arnar Arnarssonar sem nýlega lést eftir erfiða baráttu við krabbamein. Davíð Örn var Grafarvogsbúi og starfaði lengi með börnum og unglingum í hverfinu. Hann lét eftir sig eiginkonu og tvö börn. Þeim sem hafa ekki tök á að mæta á kaffihúsakvöldið en langar að styrkja fjölskylduna er bent á styrktarreikning: 0544-05-402441 kt. 111177-4819.

Þetta er í sjöunda sinn sem unglingar í Grafarvogi efna til góðgerðarviku, en hugmyndina fengu unglingarnir sjálfir á sínum tíma og hrintu í framkvæmd af miklum hug.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×