Innlent

Íslensk heimildarmynd komin á "Ólympíuleikana“

BBI skrifar
Heimildamyndin Blikkið - Saga Melavallarins hefur verið valin inn á kvikmyndahátíðina FICTS í flokknum „Blandaðar íþróttir". Leikstjórinn segir að þetta sé svipað því að komast á Ólympíuleikana.

Heimildamyndin Blikkið fjallar um sögu Melavallarins. Kári G. Schram gerði myndina og er ánægður með heiðurinn sem boðið felur í sér.

„Það er mikill heiður fyrir Blikkið að komast á þessa helstu kvikmyndahátíð Evrópu sem hefur fókus sinn á heimildamyndum sem fjalla um íþróttir," segir Kári.

Kvikmyndahátíðin Federation Internationale Cinema Television Sports verður haldin í Mílanó á Ítalíu í byrjun desember. Þetta ku vera eina hátíðin sem Ólympíusambandið vottar og styður.

„Þannig að þetta er dálítið eins og að komast inn á Ólympíuleikana. Það er taktískt ekki hægt að komast hærra með íþróttatengda heimildamynd en á þessa hátíð," segir Kári.

Hér að neðan er stikla úr myndinni.



THE PITCH from Kari Schram on Vimeo.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×