Innlent

Gerðu tugi breytinga á tillögum stjórnlagaráðs

BBI skrifar
Alþingi.
Alþingi. Mynd/GVA
Lögfróðir sérfræðingar gerðu tugi breytinga á tillögum stjórnlagaráðs áður en þær voru lagðar fyrir Alþingi í formi frumvarps. Hópurinn taldi nauðsynlegt að gera einhverjar efnisbreytingar á frumvarpinu þó hlutverk hans hafi einkum verið að skoða plaggið út frá lagatæknilegu sjónarmiði.

Hópurinn skilaði af sér frumvarpinu um miðjan nóvember og lét skilabréf fylgja með. Þar kemur fram að hópurinn hafi einna helst skoðað lagatæknilegu hlið tillagnanna, einkum með hliðsjón af alþjóðlegum samningum, innra samræmi ákvæða og þess að þær skerði ekki rétt fólks miðað við gömlu stjórnarskrána.

Hópurinn hafði það að leiðarljósi, að eigin sögn, að hrófla sem allra minnst við tillögum nema það væri nauðsynlegt út frá lagatæknilegum sjónarmiðum. „Stundum verður hins vegar ekki leyst úr lagatæknilegum göllum nema með einhverri efnisbreytingu," segir Hafsteinn Þór Hauksson, sem átti sæti í nefndinni.

„Ef það er til dæmis innbyrðis mótsögn og tvö ákvæði rekast á þá verður að breyta einhverju. Svo í einhverjum tilfellum urðum við að gera einhverjar efnisbreytingar. En þá reyndum við að halda okkur sem næst hugmyndum stjórnlagaráðs."

Telja efnislegar breytingar æskilegar

Í skilabréfi hópsins er einnig bent á efnisleg atriði sem lögfræðingunum fannst umhugsunarverð en töldu sig ekki hafa umboð til að breyta. Þau eru tíunduð í skilabréfinu og Alþingi bent á að taka þau til vandlegrar íhugunar. Hópurinn benti ekki á hugsanlegar úrbótaleiðir enda leit hann svo á að hlutverk sitt væri fyrst og fremst að setja fram uppbyggilega gagnrýni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×