Innlent

Fréttastofa Stöðvar 2 er Fjölmiðill mannúðar

BBI skrifar
Fjölskylduhjálp Íslands veitir á morgun viðurkenningar til fyrirtækja og fjölmiðla.

Það eru Fréttastofa Stöðvar 2 og Morgunblaðið sem hljóta viðurkenningu Fjölskylduhjálparinnar sem „Fjölmiðlar mannúðar". Viðurkenningin er veitt fyrir almenna umfjöllun um starfsemi Fjölskylduhjálparinnar.

Auk þess eru 16 fyrirtæki sem eru nefnd „Fyrirtæki mannúðar". Það eru Sena, Gámaþjónustan, Eimskip, Papco, Plastprent, Flúðasveppir, Sölufélag garðyrkjumanna, Sambíóin, Hop-vín ehf, Prooptik gleraugu, Krónan, Mjólkursamsalan, Skeljungur, Loðnuvinnslan Fáskrúðsfirði,, Óðinsaugu, og Síminn.

Þetta eru þau fyrirtæki sem þykja hafa lagt mest af mörkum til að styðja við starfsemi Fjölskylduhjálparinnar.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun afhenda viðurkenningarnar í húsnæði Fjölskylduhjálparinnar klukkan tvö á morgun. Afhendingin er árlegur viðburður í starfsemi Fjölskylduhjálpar Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×