Fágætar bækur á uppboði Höskuldur Kári Schram skrifar 29. nóvember 2012 22:44
Um hundrað og fimmtíu fágætar íslenskar bækur eru nú til sölu á bókauppboði á netinu, meðal annars bók um Stjörnufræði í þýðingu Jónasar Hallgrímssonar og ljóðabók eftir Dag Sigurðarson með vínslettum frá höfundi. Það er fornbókaverslunin Bókin sem stendur að uppboðinu í samstarfi við Gallerí Fold en því lýkur á sunnudag. Ari Gísli Bragason, fornbókasali, segir að uppboðið hafi gengið vel.Er slegist um ákveðna bækur? „Það hefur komið fyrir að að það sé svolítill slagur um nokkur rit," segir Ari. „Við reynum að hafa þetta allar bækur sem eru áhugaverðar. Við erum t.d. núna með Hólapostillu, tvær reyndar, önnur þeirra frá 1750, prentuð á Hólum í Hjaltadal. Við erum líka með Leirgerði svokallaða, sálmabók sem er prentuð á Leirárgörðum árið 1801.Eru þetta fágætar bækur? „Já þær eru fágætar vegna þess að þær eru í upprunalegu bandi og heilar. Þessar gömlu bækur vilja oft skemmast," segir Ari. Meðal verka á uppboðinu er bók um Stjörnufræði í þýðingu Jónasar Hallgrímssonar. „Hún er í upprunalegu bandi og reyndar með bókamerki og árituð. Það eru þessar töflur hérna aftast sem eru heilar og góðar. Hér koma líka fram ný orð, sem eru reyndar notuð enn í dag eins og til dæmis skjaldbaka og fleiri orð," segir Ari. Einnig má finna ljóðabækur eftir Dag Sigurðarson „Hérna er Níðstöng hin meiri. Það eru campari-slettur hérna frá eigandanum sjálfum. Það er nú kannski bara skemmtilegra," segir Ari.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Erlent Fleiri fréttir Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sjá meira