Auður Laxness er látin 30. október 2012 15:02 Auður Laxness var eiginkona Halldórs.
Auður Sveinsdóttir Laxness, ekkja Nóbelsverðlaunaskáldsins Halldórs Laxness, er látin á níutugasta og fimmta aldursári. Hún fæddist á Eyrarbakka 30. júlí 1918 en ólst upp á Bárugötu í Vesturbæ Reykjavíkur. Hún giftist Halldóri Laxness rithöfundi í desember 1945 og byggðu þau heimili sitt að Gljúfrasteini í Mosfellsdal þar sem þau bjuggu ásamt dætrum sínum Sigríði og Guðnýju. Auður var handavinnukennari að mennt. Hún fékk snemma áhuga á félagsmálum og kvenréttindabaráttu, var meðal stofnenda kvennablaðsins Melkorku árið 1944, sat lengi í ritnefnd tímaritsins Hugur og hönd og skrifaði greinar um vefnað, prjón og fornar íslenskar listir í þessi rit. Auk þess vann hún að hannyrðum og hönnun meðal annars á flíkum úr íslenskri ull. Má í því sambandi geta þess að þekktustu mynstur sem rutt hafa sér til rúms á lopapeysum síðustu áratugi og margir telja ævaforn hannaði Auður fyrir hálfri öld. Hún var ekki einungis húsfreyja á Gljúfrasteini, eiginkona, móðir og amma heldur var hún um langt árabil ritari og nánasti samverkamaður Halldórs. Óhætt er að segja að Auður hafi verið Halldóri einstök stoð og stytta fram til hinstu stundar hans. Samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldu Auðar dvaldi hún síðustu ár á dvalarheimilinu Grund í Reykjavík þar sem hún lést þann 29 október síðastliðinn.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Fleiri fréttir Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira