Handbolti

Þórir: Við erum ekki búin að vinna gullið ennþá

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þórir Hergeirsson.
Þórir Hergeirsson. Mynd/Nordic Photos/Getty
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, var ekki alltof sáttur með línumanninn Heidi Löke í gær þegar hún lét mynda sig með gullmedalíu á blaðamannafundi í gær. Noregur mætir Svartfjallalandi klukkan 19.30 í kvöld í úrslitaleiknum á Ólympíuleikunum í London.

„Þessi gullmedalía er fín en ég vil frekar fá eina ekta," sagði Heidi Löke en fékk síðan grimmt augnaráð frá Þóri sem hristi hausinn og gaf skýr skilaboð um að þetta væri ekki við hæfi.

„Við erum ekki búin að vinna gullið ennþá og þetta er allof snemmt," sagði Þórir við norsku blaðamennina.

Heidi Löke hefur verið mjög sigursæl á ferlinum en hún missti mjög naumlega af sigri í Meistaradeildinni í vor með ungverska liðinu Gyor. Gyor tapaði þá á færri mörkum skoruðum á útivelli á móti Budocnost frá Svartfjallalandi.

Budocnost-liðið er einmitt að mestu skipað landsliðskonum Svartfjallaland, mótherjum norska liðsins í kvöld.

„Þetta versta leiðin til þess að tapa úrslitaleik. Það varð jafntefli en við töpuðum samt. Ég er ekki vön að staldra of lengi við töpin en það tók sinn tíma að jafna sig á þessu," sagði Heidi Löke sem er búin að fá skýr skilboð að heiman.

„Alexander, fimm ára sonur minn, hefur pantað aðalverðlaunin og við ræðum ekkert annað en að við séum á leiðinni heim með gullið. Þegar þú ert kominn í úrslitaleikinn þá er gullið það eina sem einhverju máli skiptir," sagði Löke.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×