Þórir vann gullnu þrennuna með Noregi Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar 11. ágúst 2012 21:02 Þórir tók við mörgum hamingjuóskum í kvöld. Mynd/Valli
Noregur varð í kvöld Ólympíumeistari í handknattleik kvenna eftir sigur á Svartfjallalandi, 26-23, í spennandi úrslitaleik í London í kvöld. Þjálfari liðsins er Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson. Noregur er ríkjandi heims- og Evrópumeistari og er þetta í fyrsta sinn sem þetta sigursæla landslið er handhafi allra stóru titlanna samtímis. Ótrúlegur árangur hjá Þóri og leikmönnum hans. Norðmenn höfðu þriggja marka forystu í hálfleik, 13-10, en Svartfjallaland barðist af miklum krafti og gafst aldrei upp. Lokamínútur leiksins voru æsispennandi en að lokum fagnaði Noregur sigri, þökk sé gríðarlega sterkum varnarleik á lokakafla leiksins. Þær norsku voru lengi í gang og á fyrstu ellefu mínútum leiksins nýttu þær ekki nema tvö af tólf skotum sínum. Vörn liðsins hélt þó ágætlega og Svartfjallaland náði mest aðeins tveggja marka forystu. Bæði lið gerðu mörg mistök í upphafi leiks og voru greinilega taugaóstyrk. En þegar sóknarleikur Norðmanna small loksins og leikmenn fundu miðið voru þeir ekki lengi að ná undirtökunum í leiknum. Skyttan Jorum Linn Sulland snögghitnaði og náði að jafna metin og koma Noregi yfir með skömmu millibili um miðbik fyrri hálfleiksins. Það voru hennar fyrstu mörk í leiknum en þau urðu alls sjö áður en leikmenn gengu til búningsklefa að honum loknum. Svartfellingar gáfust þó aldrei upp og leyfðu þeim norsku aldrei að stinga sig af. Sulland kom Noregi þremur mörkum yfir, 18-15, eftir um tíu mínútna leik í síðari hálfleik en þá setti vörn Svartfjallalands í lás og liðið náði svo að jafna metin, 19-19, þegar tæpur stundarfjórðungur var til leiksloka. Bæði lið léku gríðarlega sterkan varnarleik síðustu mínútur leiksins. Norðmenn náðu þó aftur undirtökunum en Svartfellingar voru sem fyrr ávallt skammt undan. Var því helst frammistöðu markvarðarins Sonju Barjaktarovic að þakka. Svartfjallaland lendi í undritölu þegar rúmar tvær mínútur voru eftir en náði samt að minnka muninn í eitt mark, 23-22. En hið þaulreynda norska lið stóðst álagið síðustu mínúturnar og gat fagnað í leikslok. Tólf þúsund manns voru í Basketball Arena í kvöld og flestir á bandi Noregs. Andrúmsloftið í höllinni var magnað og var spennan gríðarleg á lokamínútunum. Árangur Svartfjallalands er engu að síður góður en þetta eru fyrstu verðlaun liðsins á stórmóti. Þær tóku tapinu vel í kvöld og fögnuðu silfrinu vel og innilega, þó svo að einhverjir leikmenn hafi líka fellt tár. Lið Svartfjallalands er að langmestum hluta skipað leikmönnum úr sama liðinu - ZRK Buducnost - auk þess sem þjálfari liðsins er einnig þjálfari landsliðsins. Ísland vann sem kunnugt er góðan sigur á Svartfjallandi á HM í Brasilíu á síðasta ári. Svartfellingar enduðu í tíunda sæti í Brasilíu en það dugði rétt svo til að komast í umspilskeppnina fyrir leikana í London, sem liðið komst svo í gegnum. Þetta voru fyrstu verðlaun liðsins á stórmóti. Þórir hefur nú stýrt Noregi í verðlaunasæti á öllum fjórum stórmótum sínum sem aðallþjálfari. Fyrst kom brons á HM í Kína 2009 en liðið hefur unnið öll mót eftir það. Þórir var áður aðstoðarþjálfari liðsins í átta ár. Norska handboltalandsliðið hefur unnið til verðlauna á stórmótum í alls 21 skipti frá árinu 1986. Þar af eru níu gullverðlaun.
Mest lesið Töluverðar tafir vegna stórfurðulegs atviks í Krikanum Íslenski boltinn Rory reiður: „Grjóthaltu kjafti“ Golf Síðasta verk Salah að sparka Slot? Enski boltinn Brjálaður eftir ranga skiptingu og sýndi sönnunargögn Fótbolti Mourinho tekur við Real Madrid en fyrirliðinn kveður Fótbolti Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Enski boltinn Sjáðu mark Gylfa frá miðju, Sigurjón stöðva KR og drama á Hlíðarenda Íslenski boltinn Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Golf Segir starf Jóhannesar ekki í hættu Íslenski boltinn Viðurkenna mistök og markið hefði aldrei átt að standa Enski boltinn Fleiri fréttir Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Dagur gat ekki stillt upp sínu sterkasta í tapi gegn Svíum Santos óskaði eftir starfslokum sem þjálfari Selfoss Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Tilkynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði landsleik Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ HSÍ verður að fá pening frá ríkinu „Hlakkaði til að koma hingað eftir síðasta leik“ „Gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum“ „Ofboðslega stolt af því að standa hér sem sigurvegari“ „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að við værum on“ „Tímabilið hefur verið rússibani“ „Slæm byrjun í seinni hálfleik varð okkur að falli“ Uppgjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri tilraun Katrín Tinna til Danmerkur „Við þurfum að gera betur á öllum vígstöðvum“ Birgir Már til Amicitia Zürich Alfreð fékk heiðursorðu Ómar Ingi fór hamförum og Íslendingaliðið einu skrefi frá titli ÍBV fær háa sekt vegna ósæmilegrar hegðunar stuðningsmanns Sjá meira