Handbolti

Frakkarnir yfirbugaðir í Koparboxinu | Myndir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Íslenska handboltalandsliðið er á fljúgandi siglingu á Ólympíuleikunum í London eftir frábæran sigur á ríkjandi Ólympíumeisturum Frakka í greininni, 30-29. Sigrinum glæsilega var fagnað mikið í leikslok enda ekki á hverjum degi sem þetta ógnarsterka franska landslið þarf að lúta í lægra hald.

Ísland náði fimm marka forystu í fyrri hálfleik en Frakkarnir náðu að jafna leikinn áður en fyrri hálfleik lauk. Leikurinn var svo afar spennandi í þeim síðari en Íslendingar stigu upp á hárréttu augnabliki og tryggðu sér eins marks sigur, 30-29.

Andrúmsloftið í Koparboxinu var magnað í kvöld og var Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, á staðnum. Hann tók þessar myndir.

Mynd/Valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×