Segir að Jóhanna hafi ekki ætlað sér að virða niðurstöðu kærunefndar Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 21. júní 2012 12:15 Þórunn Guðmundsdóttir.
Lögmaður Önnu Kristínar Ólafsdóttur, sem í gær voru dæmdar miskabætur vegna brots forsætisráðuneytisins á jafnréttislögum gagnrýnir yfirlýsingu ráðuneytisins vegna málsins og segir hana líta framhjá mikilvægum þáttum dómsins. Í kjölfar dómsins í gær sendi ráðuneytið frá sér yfirlýsingu þar sem vakin er athygli á því að í dóminum sé hvorki lagt sjálfstætt né efnislegt mat á því hvort jafnréttislög hafi verið brotin þegar ráðið var í starf skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu. Þórunn Guðmundsdóttir lögmaður Önnu Kristínar segir niðurstöðu dómsins alveg skýra. „Það er merkilegt í yfirlýsingunni að það er litið framhjá því að niðurstaða dómsins er allveg skýr. Jóhanna braut gegn jafnréttislögum með skipan í þetta skrifstofustjóraembætti. Svo er annað, sem er ekkert minnst á í yfirlýsingunni að ástæðan fyrir því að hún er dæmd bótaskyld eru viðbrögð hennar við niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála á sínum tíma." Niðurstaða kærunefndarinnar var á þann veg að Anna Kristín hefði átt að fá starfið þar sem hún hefði verið jafnhæf hið minnsta. „Síðan þegar hún fær á sig þennan bindandi úrskurð þá sýnir hún þá ekki auðmýkt að virða bara niðurstöðu kærunefndarinnar og jafnframt tilkynnir hún skipun sérstaks rýnihóps til að fara yfir niðurstöðuna. Hún ætlaði sér ekki að virða niðurstöðu kærunefndarinnar." Forsætisráðherra vildi ekki veita viðtal þegar eftir því var leitað og segir aðstoðarmaður hennar að yfirlýsing ráðuneytisins segi allt sem segja þarf.
Tengdar fréttir Ráðuneytið fagnar niðurstöðu í jafnréttismálinu Forsætisráðuneytið fagnar því að niðurstaða héraðsdóms í máli Önnu Kristínar Ólafsdóttur gegn íslenska ríkinu liggi fyrir. "Í samræmi við fyrri yfirlýsingar mínar og sáttavilja í þessu máli ítreka ég þá von, að með þessari niðurstöðu megi ljúka málinu, með sama hætti og ég lagði sjálf til þegar í upphafi," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í tilefni dómsins. Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu er vakin athygli á því að í dóminum sé kröfu stefnanda um skaðabætur hafnað en fallist á sömu fjárhæð miskabóta og forsætisráðuneytið hafði þegar boðið stefnanda í kjölfar úrskurðar kærunefndar jafnréttismála. 20. júní 2012 16:46 "Lögfræðingurinn í manni vill sjá málið hjá Hæstarétti" Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, hafði ekki kynnt sér dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Önnu Kristínar Ólafsdóttur gegn forsætisráðuneytinu þegar Vísir hafði samband við hana í morgun. Fréttastofa náði tali af Ingibjörgu Elíasdóttur, lögfræðingi hjá Jafnréttisstofu. 21. júní 2012 11:07 Héraðsdómur: Jóhanna braut jafnréttislög Anna Kristín Ólafsdóttir, fékk í dag dæmdar 500 þúsund krónur, í miskabætur frá ríkinu. Hún var umsækjandi um stöðu skrifstofustjóra hjá forsætisráðuneytinu. Arnar Þór Másson var ráðinn í stöðuna. Anna Kristín kærði ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála sem komst að þeirri niðurstöðu að Jóhanna Sigurðardóttir hafi brotið gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna þegar hún skipaði Arnar í stöðuna. 20. júní 2012 14:01 Anna Kristín: "Þetta er sigur fyrir konur“ „Þetta er áhugavert út af fyrir sig, það er ekki algengt að forsætisráðherra sé gert að borga einstaklingi miskabætur fyrir að ganga yfir hann á skítugum skónum," sagði Anna Kristín Ólafsdóttir um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem staðfesti úrskurð kærunefndar jafnréttismála um að hún hafi verið að minnsta kosti jafn hæf til þess að gegna starfi skrifstofustjóra á nýrri skrifstofu stjórnsýslu- og samfélagsþróunar í forsætisráðuneytinu. Sjálf var Anna Kristín stödd erlendis í fríi þegar Vísir náði tali af henni og hafði ekki lesið dóminn. 20. júní 2012 15:40 Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Sjá meira
Ráðuneytið fagnar niðurstöðu í jafnréttismálinu Forsætisráðuneytið fagnar því að niðurstaða héraðsdóms í máli Önnu Kristínar Ólafsdóttur gegn íslenska ríkinu liggi fyrir. "Í samræmi við fyrri yfirlýsingar mínar og sáttavilja í þessu máli ítreka ég þá von, að með þessari niðurstöðu megi ljúka málinu, með sama hætti og ég lagði sjálf til þegar í upphafi," segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í tilefni dómsins. Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu er vakin athygli á því að í dóminum sé kröfu stefnanda um skaðabætur hafnað en fallist á sömu fjárhæð miskabóta og forsætisráðuneytið hafði þegar boðið stefnanda í kjölfar úrskurðar kærunefndar jafnréttismála. 20. júní 2012 16:46
"Lögfræðingurinn í manni vill sjá málið hjá Hæstarétti" Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, hafði ekki kynnt sér dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Önnu Kristínar Ólafsdóttur gegn forsætisráðuneytinu þegar Vísir hafði samband við hana í morgun. Fréttastofa náði tali af Ingibjörgu Elíasdóttur, lögfræðingi hjá Jafnréttisstofu. 21. júní 2012 11:07
Héraðsdómur: Jóhanna braut jafnréttislög Anna Kristín Ólafsdóttir, fékk í dag dæmdar 500 þúsund krónur, í miskabætur frá ríkinu. Hún var umsækjandi um stöðu skrifstofustjóra hjá forsætisráðuneytinu. Arnar Þór Másson var ráðinn í stöðuna. Anna Kristín kærði ráðninguna til kærunefndar jafnréttismála sem komst að þeirri niðurstöðu að Jóhanna Sigurðardóttir hafi brotið gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna þegar hún skipaði Arnar í stöðuna. 20. júní 2012 14:01
Anna Kristín: "Þetta er sigur fyrir konur“ „Þetta er áhugavert út af fyrir sig, það er ekki algengt að forsætisráðherra sé gert að borga einstaklingi miskabætur fyrir að ganga yfir hann á skítugum skónum," sagði Anna Kristín Ólafsdóttir um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem staðfesti úrskurð kærunefndar jafnréttismála um að hún hafi verið að minnsta kosti jafn hæf til þess að gegna starfi skrifstofustjóra á nýrri skrifstofu stjórnsýslu- og samfélagsþróunar í forsætisráðuneytinu. Sjálf var Anna Kristín stödd erlendis í fríi þegar Vísir náði tali af henni og hafði ekki lesið dóminn. 20. júní 2012 15:40