Vinna við Vaðlaheiðargöng gæti hafist síðsumars Kristján Már Unnarsson skrifar 26. júní 2012 19:15
Fyrsti fundur um gerð verksamnings vegna Vaðlaheiðarganga verður á morgun milli Vegagerðarinnar og lægstbjóðanda. Verktakinn segist geta hafist handa eftir tvo mánuði. Tveimur vikum eftir að Alþingi samþykkti með 29 atkvæðum gegn 13 að ríkissjóður lánaði allt að 8,7 milljarða króna til Vaðlaheiðarganga er komið að því að stíga næsta skref. Á morgun hefjast viðræður milli Vegagerðarinnar og verktakans, sem átti lægsta boð, ÍAV og Marti, um verksamninginn, en þeir buðust í október í haust til að grafa göngin fyrir 8,9 milljarða króna. Gísli Eiríksson, sem kemur að verkefninu fyrir hönd Vegagerðarinnar, segir að venjulega taki nokkrar vikur að ljúka gerð verksamnings og giskar á undirritun seinnipartinn í ágúst. Út frá því áætlar Gísli að vinna við göngin geti hafist í haust en tekur fram að fyrst þurfi aðrir verktakar að ljúka smíði bráðabirgðabrúar og vegar að vinnusvæði. Karl Þráinsson, forstjóri ÍAV, segir að þeir gætu hafist handa í kringum mánaðamótin ágúst-september. Byrjað verði á að grafa frá væntanlegum gangamunnum og telur Karl að fyrsta sprenging geti orðið í lok nóvember eða byrjun desember.
Mest lesið „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Fleiri fréttir Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Sjá meira