Innlent

Útgefnum vegabréfum fjölgaði um 10% milli ára í maí

Í maí s.l. voru gefin út 6.344 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 5.753 vegabréf í maí í fyrra. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 10,3 % milli ára.

Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands annast útgáfu vegabréfa auk nokkurra annarra skilríkja. Vakin er athygli á því að 23. maí 2006 styttist gildistími almennra vegabréfa úr 10 árum í 5 ár þegar að örgjörva var bætt í vegabréfið. Í maí 2011 runnu fyrstu vegabréfin með örgjörva út og skýrir þetta að einhverju leyti aukna vegabréfaútgáfu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×