Köln féll en Hertha á möguleika á að bjarga sér Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. maí 2012 15:42 Leikmenn Herthu Berlínar fagna með Rehhagel í dag. Nordic Photos / Getty Images
Lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag og var mesta spennan á botni deildarinnar, þar sem Hertha Berlín og Köln voru í eldlínunni. Otto Rehhagel var fenginn á miðju tímabili til að forða Herthu Berlín frá falli og á hann enn möguleika á því. Hertha vann í dag 3-1 sigur á Hoffenheim en Köln tapaði á sama tíma fyrir Bayern á útivelli, 4-1. Köln endaði því í sautjánda og næstneðsta sæti deildarinnar og er fallið í B-deildina ásamt botnliði Kaiserslautern. Hertha á hins vegar enn möguleika á að bjarga sér en þarf að komast í gegnum umspil gegn liðinu sem endar í þriðja sæti B-deildarinnar. Norðmaðurinn Ståle Solbakken var rekinn frá Köln þann 12. apríl síðastliðinn en liðið fékk aðeins eitt stig af tólf mögulegum eftir það. Dortmund var fyrir nokkru búið að tryggja sér meistaratitilinn og Bayern endaði í öðru sæti. Schalke varð í þriðja og Gladbach fjórða. Öll lið fá þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Bayer Leverkusen, Stuttgart og Hannover spila öll í Evrópudeild UEFA á næstu leiktíð:Úrslit dagsins: Dortmund - Freiburg 4-0 Bremen - Schalke 2-3 Hannover 96 - Kaiserslautern 2-1 Mainz - Gladbach 0-3 Nürnberg - Leverkusen 1-4 Stuttgart - Wolfsburg 3-2 Köln - FC Bayern 1-4 Augsburg - Hamburg 1-0 Hertha - Hoffenheim 3-1
Þýski boltinn Mest lesið Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Fótbolti „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Íslenski boltinn Gunnar Nelson í sjómann við mann sem hann átti að mæta í búrinu Sport Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúla 1 Davíð Tómas skipti um skoðun: „Ég var of fljótur á mér“ Körfubolti Máttu ekki synja dansara vegna ásakana um perraskap Sport Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ Íslenski boltinn Frá út leiktíðina og missir af HM Enski boltinn Upp úr sauð milli þjálfaranna í Garðabæ: „Ég bað hann afsökunar“ Körfubolti Sjáðu mörkin fyrir norðan og svakalegt fagn Davíðs Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fékk sér tebolla með Ratcliffe Setti sjálfan sig í bann eftir ásakanir Sjáðu mörkin fyrir norðan og svakalegt fagn Davíðs „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Frá út leiktíðina og missir af HM Umfjöllun og viðtöl: KA 1-2 Keflavík | Fyrsti sigur Keflavíkur Hallgrímur Jónasson: „Staðan er bara alvarleg“ Missti stjórn á skapi sínu og réðst á mótherja Elías Rafn hélt hreinu í toppslagnum Hákon á sínum stað er Lille vann mikilvægan sigur Olivia Smith tryggði Arsenal dramatískan sigur Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Fékk rautt fyrir að rífa í hár mótherja: „Þetta er alveg galið“ Orri skoraði en bikarmeistararnir köstuðu frá sér sigrinum Albert áberandi í sóknarleik Fiorentina en mörkin komu ekki Sjáðu öll mörkin úr Bestu deild kvenna: Draumabyrjun nýliðanna og dramatík fyrir norðan Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Vinni gegn Jóni Degi að vera með vegabréf frá Íslandi Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Uppgjörið: Valur 2-1 Grindavík/Njarðvík | Ísabella Sara hetja Valskvenna Uppgjörið: Þór/KA 1-1 FH | Dramatískt jöfnunarmark og töpuð stig Jón Dagur þaggaði niður í gagnrýnendnum með mögnuðu marki Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Glódís stóð vaktina gegn Barcelona og allt opið í einvíginu Birta skoraði en mátti þola tap í Íslendingaslag HK byrjar á sigri Börsungar að stinga af Þriðji sigur Liverpool í röð Sjá meira