Alfreð: Aron gat ekki gengið eftir forkeppni ÓL Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. apríl 2012 23:13 Aron í leik með íslenska landsliðinu. Nordic Photos / Getty Images
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel, segir að Aron Pálmarsson hafi ekki enn jafnað sig á meiðslum sem hann varð fyrir með íslenska landsliðinu á EM í Serbíu. Þau hafi versnað þegar hann spilaði með landsliðinu í forkeppni Ólympíuleikanna um páskana. Aron var eini leikmaður Kiel á sjúkralistanum í kvöld en þá vann liðið sigur á Göppingen. Kiel hefur unnið alla 28 leiki sína á tímabilinu og virðist fátt geta stöðvað liðið. „Aron hefur verið í vandræðum með liðband í hné síðan á EM í janúar," sagði Alfreð við þýska fjölmiðla eftir leikinn í kvöld. „Við höfum hugsað mjög vel um hann en þá komu þessi forkeppni fyrir ÓL með íslenska landsliðinu," bætti hann við en Aron spilaði ekkert í lokaleik Íslands í forkeppninni, gegn Króatíu. „Þá spilaði hann þrjá leiki á einni viku og var í það slæmu ástandi þegar hann kom til baka að hann gat ekki gengið. Hann er í endurhæfingu á hverjum degi og við vonum að hann geti spilað með okkur í Zagreb á laugardaginn. En svona er ástandið hjá okkur í þessari íþrótt - álagið er meira að segja of mikið fyrir ungan leikmann."
Mest lesið Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Körfubolti Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Íslenski boltinn „Þær héldu að þær myndu labba yfir okkur“ Sport Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Handbolti Eriksen yfirgefur Wolfsburg Fótbolti Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Íslenski boltinn Fleiri fréttir Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram Reynir Þór hafði betur gegn Hauki í framlengdum leik Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Jóhanna um landsliðið: „Auðvitað er það svekkjandi“ Reynir vann Íslendingana sem tapa nánast aldrei Haukar - Valur 28-24 | Stórleikur Jóhönnu og Haukar með fullt hús stiga 33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba ÍR vann öruggan sigur og ÍBV tók Selfoss Fram og Stjarnan unnu bæði Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Stórsigur hjá Magdeburg og svekkjandi jafntefli í Danmörku ÍBV beið eftir betra veðri og sótti sigur Reynir Þór og félagar töpuðu með einu marki í mikilli dramatík Í skýjunum með dönsku nýlenduna í Þorpinu „Erum að spila fyrir allt Þórs samfélagið“ „Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“ Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Valur bætti vörnina úr síðasta leik Elín Rósa og Díana Dögg unnu stórsigur Þórsarar höfðu betur í slagnum um Akureyri Orri Freyr markahæstur gegn Íslendingaliðinu Ófært frá Eyjum og leiknum frestað Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Missti eins árs gamlan son sinn Elín Klara slær í gegn og uppfyllir brátt draum sinn Snorri Steinn valdi elítuhóp úr Olís-deildinni Valur rétti af skelfilega byrjun Íslendingarnir fóru ekki mjúkum höndum um lærisveina Rúnars „Við höfum óbilandi trú á okkur sjálfum “ Uppgjörið: HK - ÍR 18-20 | Tæpur sigur ÍR í Kópavoginum Sjá meira
„Þetta móment á þessum stað á móti KA fyrir mitt félag að sjá fögnuðinn og upplifa hann var bara æðislegt“