Sport

Kristinn náði ekki lágmarkinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristinn Torfason í stökki í Laugardalshöllinni.
Kristinn Torfason í stökki í Laugardalshöllinni. Mynd/Anton
Kristinn Torfason, FH, bar sigur úr býtum í langstökki karla á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum í dag en náði þó ekki lágmarkinu fyrir HM innanhúss.

Lágmarkið er 8,15 m og var Kristinn nokkuð langt frá sínu besta. Lengsta stökkið hans var 7,40 m. Næstur varð Bjarni Malmquist Jónsson með 6,87 m.

Íslandsmet karla innanhúss í langstökki á Jón Arnar Magnússon. Það er 7,82 m og var sett fyrir tólf árum síðan.

Egill Níelsson, FH, vann gull í hástökki karla en hann stökk 1,94 m. Þá var einnig keppt í þrístökki kvenna og þar varð Jóhanna Ingadóttir, ÍR, hlutskörpust með 12,39 m.

Í stangarstökki kvenna vann Hulda Þorsteinsdóttir, ÍR, gull en hún stökk 3,90 m en felldi svo 4,05 í þremur tilraunum.

Þá er keppni einnig lokið í 60 m grindahlaupum karla og kvenna. María Rún Gunnlaugsdóttir, Ármanni, og Sigurður Lúðvík Stefánsson, ÍR, unnu þær greinar. María kom í mark á 8,93 sekúndum og Sigurður á 8,81 sekúndu.

Í 3000 m hlaupi kvenna vann Arndís Ýr Hafþórsdóttir, Fjölni, sigur en hún kom í mark á 10:10,36 mínútum. Björn Margeirsson, UMSS, fékk gull í karlaflokki en hann hljóp á 9:05,84 mínútum.

Íslandsmethafinn Kári Steinn Karlsson var skráður í hlaupið en keppti ekki.


Tengdar fréttir

Hafdís með fjórða gullið

Hafdís Sigurðardóttir, UFA, hefur unnið sín fjórðu gullverðlaun á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum. Hún kom fyrst í mark í 200 m hlaupi kvenna.

Hafdís vann þrjú gull og með besta afrekið

Meistarmót FRÍ fer fram nú um helgina í Laugardalshöllinni og er seinni keppnisdagur þegar hafinn. Í gær náði Hafdís Sigurðardóttir, UFA, besta árangri dagsins þegar hún sigraði í 400 m hlaupi kvenna.

Aníta sigraði með yfirburðum í 800 m hlaupi

Aníta Hinriksdóttir, ung hlaupakona úr ÍR, sigraði með miklum yfirburðum í 800 m hlaupi kvenna á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem nú fer fram í Laugardalshöllinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×