Sport

Hafdís með fjórða gullið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hafdís Sigurðardóttir hefur náð góðum árangri um helgina.
Hafdís Sigurðardóttir hefur náð góðum árangri um helgina. Mynd/Stefán
Hafdís Sigurðardóttir, UFA, hefur unnið sín fjórðu gullverðlaun á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum. Hún kom fyrst í mark í 200 m hlaupi kvenna.

Hafdís hljóp á 24,83 sekúndum og var rúmri sekúndu frá Íslandsmetinu innanhúss sem Silja Úlfarsdóttir setti árið 2004. Hún vann í sigur í 60 og 400 m hlaupum sem og langstökki kvenna í gær.

Trausti Stefánsson, sem vann gull í 400 m hlaupi í gær, fagnaði einnig sigri í 200 m hlaupi karla í dag. Kom hann í mark á 21,77 sekúdnum og var aðeins tólf hundraðshlutum úr sekúndu frá meti Óla Tómasar Freyssonar frá 2008.


Tengdar fréttir

Hafdís vann þrjú gull og með besta afrekið

Meistarmót FRÍ fer fram nú um helgina í Laugardalshöllinni og er seinni keppnisdagur þegar hafinn. Í gær náði Hafdís Sigurðardóttir, UFA, besta árangri dagsins þegar hún sigraði í 400 m hlaupi kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×