Álag á bráðamóttöku um jólin Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 27. desember 2012 18:56 Mynd/Vilhelm
Mikið álag var á bráðamóttöku Landspítalans um jólin og segir deildarstjóri marga hafa leitað þangað eftir slagsmál og heimilisofbeldi. Þá hafi ölvun sjúklinganna verið töluverð. Jólin eru oft annasamur tími á bráðamóttöku Landspítalans og í ár mæddi mikið á starfsfólki deildarinnar. Deildarstjórinn segir töluvert hafa verið um skemmtanahald um jólin sem sem hafi endað á bráðamóttökunni. „Það hafa verið líkamsárásir og pústrar og heimilisofbeldi og barnaverndarmál. Þetta er bara allur skalinn sem við fáumst við hér um jólin,"segir Ragna Gústafsdóttir, deildarstjóri bráðamóttöku Landspítalans. Þá segir hún ölvun hafa verið áberandi meðal þeirra sem þangað leituðu að nóttu til. „Það er töluvert um ölvun og pústra um jólin," segir Ragna. Ragna segir suma leita á bráðamóttöku eftir að fjölskylduskemmtanir fara úr böndunum. Tvö mál hafi verið tilkynnt til barnaverndarnefndar vegna ofbeldis á heimilum. „Það þykir okkur alltaf sorglegt þegar við þurfum að eiga við barnaverndarmál um jólin. Það tekur mjög á," segir Ragna. Ragna segir að á milli tvö og þrjú hundruð manns hafi leitað á bráðamóttökuna á hverjum sólarhring um jólin en lokun annarra deilda hafi sitt að segja. Alltaf sé nokkuð um að fólk leiti þangað sem líður illa eftir að hafa borðað mikið af reyktum og söltum mat. „Sérstaklega hjarta og lungnasjúklingar finna vel fyrir því og koma mjög gjarnan hingað með sín vandamál," segir Ragna. Starfsfólk bráðamóttökunnar býr sig nú undir áramótin sem eru annasamasti tími ársins á deildinni. „Flugeldaslysin hafa sirka verið um 30. Það hefur svona aðeins breyst í kringum síðustu ár. Þetta voru mest unglingarnir. Við höfum náð árangri greinilega í því þeim hefur fækkað en núna eru það pabbarnir sem að eru stærsti hópurinn. Það er svona frá 25 ára kannski upp í 35 ára og þeir þurfa að passa sig pabbarnir," segir Ragna.
Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira