Kynbundinn launamunur Stefán Einar Stefánsson skrifar 25. mars 2011 15:17 Samkvæmt launakönnun VR mælist kynbundinn launamunur félagsmanna rétt um 10%. Erfiðlega virðist ganga að draga úr þessu óréttlæti því á síðustu árum hefur þessi munur ekki minnkað svo nokkru nemi. Eitt af því sem skýrir þennan mun er sú staðreynd að konur eru alla jafna hógværari í kröfum sínum þegar kemur að hinu árlega launaviðtali sem félagsmenn eiga rétt á. Þannig hafa rannsóknir leitt í ljós að þegar karlar og konur eru spurð hvað þau vilji hafa í laun, reynist munurinn meira en 10%. Af þeim sökum má ætla að munurinn muni aukast eitthvað frá því sem nú er, verði ekki brugðist við. Aðferðin Til dagsins í dag hefur VR lagt áherslu á að hvetja konur til að sækja rétt sinn af fullum krafti. Launakönnun félagsins, sem félagsmönnum gefst kostur á að taka þátt í, er öflugt tæki í höndum þess sem vill semja um launin sín því hún gefur til kynna hvernig kaupin á eyrinni gerast á hverjum tíma. Nú þegar gefið hefur á bátinn og fyrirtækjastjórnendur eru ólíklegri en áður var til þess að hækka laun, utan við það sem kjarasamningar kveða á um, er mikilvægt að leita nýrra leiða til að berjast gegn því samfélagsmeini sem launamunur kynjanna er. Af þeim sökum hef ég kynnt nýja leið sem ég tel að geti stutt við bakið á konum í þeirri baráttu sem felst í því að útrýma kynbundnu launamisrétti.Launavog VR Ég tel að VR eigi að standa vörð um hagsmuni félagsmanna sinna og einkum og sér í lagi þeirra sem hallar á. Ég tel að formaður VR, með stuðningi kjarasviðs félagsins, eigi að leita samninga við stjórnendur fyrirtækja um að á þeirra eigin vettvangi, þ.e. innan veggja tiltekinna fyrirtækja, sé farið ofan í saumana á því hver launamunurinn mælist þar. Þegar það sést svart á hvítu, en ekki almennt eins og í launakönnunum, eru meiri líkur til þess að stjórnendurnir, séu þeir ærlegir einstaklingar, vilji bregðast við og koma í veg fyrir misréttið. Sé hægt að fá stjórnendur stórra fyrirtækja í þennan leiðangur með VR er hægt að koma á fót vottunarferli sem kalla má „launavog VR". Sú vottun myndi fela það í sér að ef forsvarsmenn kjaramála hjá félaginu hafa fullvissað sig um að tiltekið fyrirtæki sé að taka á launamisréttinu með markvissum hætti, fái viðkomandi fyrirtæki vottun sem þátttakandi í launavoginni. Launavogin vísar til þeirrar vogar sem réttlætisgyðjan notaðist við. Munurinn á henni og VR er sá að VR ætlar ekki að hafa bundið fyrir augun í mælingum sínum, heldur ráðast að rót vandans.Aðferð sem virkar? Einhverjir kunna að halda að þessi aðferð sé vonlaus í framkvæmd. Margt bendir þó í aðra átt. Ég hef rætt við fyrirtækjastjórnendur sem segja sig reiðubúna í þetta verkefni. Þá er einnig ljóst að fyrirtæki í dag takast á við ýmiss konar vanda, ekki aðeins rekstrarlegan heldur einnig ímyndarlegan. Fyrirtæki sem fær vottun um að það sé að taka á alvarlegri meinsemd eins og launamisrétti kynjanna er líklegt til þess að hljóta náð fyrir augum fólks, þ.e. viðskiptavina. Má vera að lífeyrissjóðir væru líklegri en ella til að fjárfesta í slíkum fyrirtækjum? Vottun sem gefur fyrirtæki „heilbrigðisvottorð" í þessum efnum mun njóta velvildar margra. Að minnsta kosti minnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar