Fjölskylda hinnar myrtu í áfalli 5. október 2011 02:00 Móðir, bróðir og systir hinnar myrtu ræddu við fjölmiðla á Ítalíu í gær.fréttablaðið/AP
Amanda Knox hélt heim til Bandaríkjanna í gær frá Ítalíu, þar sem hún var á mánudag sýknuð af morðákæru eftir að hafa dvalist fjögur ár í fangelsi. Fjölskyldu hennar var mjög létt og bjó sig undir að taka fagnandi á móti henni. Á hinn bóginn var fjölskylda Meredith Kercher í áfalli eftir niðurstöðu áfrýjunardómstólsins, sem sneri við dómi undirréttar. „Þetta var dálítið áfall,“ sagði Stephanie Kercher, systir hinnar myrtu. „Þetta er mjög óþægilegt. Við höfum enn engin svör fengið.“ Saksóknari ætlar að áfrýja málinu til hæstaréttar og segist sannfærður um að þá verði Knox og Sollecito fundin sek. Árið 2009 hlaut Knox 26 ára fangelsisdóm í undirrétti fyrir að hafa myrt Meredith Kercher í íbúð þeirra haustið 2007, þegar þær voru báðar um tvítugt. Kærasti Knox, Raffaele Sollecito, hlaut 25 ára fangelsi fyrir aðild sína að morðinu, en hann var einnig sýknaður á mánudag. Þriðji maðurinn, Rudy Guede, hefur einnig hlotið dóm fyrir aðild sína, en dómstóll komst að þeirri niðurstöðu að hann hefði ekki staðið einn að verki.- gb
Amanda Knox Ítalía Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira