Opinber tvíræðni í samningaferlinu að ESB Þorbjörn Þórðarson skrifar 19. janúar 2011 11:50 Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ráðuneyti hans segir að engin áform séu uppi um stofnun greiðslustofnunar í landbúnaði. Á sama tíma vinna embættismenn hans náið með utanríkisráðuneytinu að samningsferlinu við ESB og sækja um styrki til að undirbúa þessa sömu stofnun.
Engin áform eru uppi um stofnun greiðslustofnun í landbúnaði, segir sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytið, þrátt fyrir að sótt hafi verið um sérfræðistyrki til ESB með milligöngu utanríkisráðuneytisins til að undirbúa slíka stofnun hér á landi. Engin áform eru um að breyta íslenskum lögum eða reglugerðum til að stofna greiðslustofnun í landbúnaði eða taka upp byggðaáætlun að hætti Evrópusambandsins, fyrr en aðild að sambandinu hefur verið samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu og formlega staðfest af Íslandi og ESB. Þetta kemur fram í svari sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins við spurningum sambandsins en Morgunblaðið greinir frá þessu í dag. ESB spurði hvernig hvernig og hvenær Ísland hygðist aðlaga lagaumhverfi sitt hvað varðar stofnun greiðslustofnunar og fleiri breytingar varðandi stjórn- og eftirlitskerfi landbúnaðarins. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hafa svörin ekki verið send út og eru þau til umfjöllunar hjá utanríkisráðuneytinu. Búið að sækja um styrkina Eins og fréttastofa hefur greint frá hefur þegar verið ákveðið að sækja um styrki til ESB, svokallaða TAIEX-styrki, (technical assistance information exchange program) en um er að ræða sérfræðiráðgjöf frá Evrópusambandinu til að vinna að gerð landupplýsingakerfis annars vegar og stofnun greiðslustofnunar hins vegar. Utanríkisráðuneytið hafði milligöngu um styrkumsóknirnar, en sú tilhögun var ákveðin af ríkisstjórninni eftir pólitískan ágreining innan ríkisstjórnarinnar í málinu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að fá beinan fjárstuðning frá ESB vegna verkefnanna, þ.e svokallaða IPA-styrki, vegna andstöðu ráðherra Vinstri grænna við slíka styrki. Fyrirvari hefur verið gerður um að engar varanlegar breytingar verði gerðar á íslenskri stjórnsýslu fyrr en þjóðin hefur samþykkt aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu. Fram hefur komið í fjölmiðlum, m.a á Stöð 2, að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi ekki verið upplýstur um að sótt hafi verið um TAIEX-styrkina, en fréttastofa hefur heimildir fyrir því innan úr samninganefndinni að sótt hafi verið um styrkina með fullri vitund ráðherrans.Afstaða ráðuneytisins af hinu góða? Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að innan samninganefndir megi finna sjónarmið um að afstaða sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins til spurningalista ESB sé af hinu góða því líta megi svo á að með því að svara ESB með þessum hætti, þ.e tilkynna að framangreind tvö mál séu ekki á dagskrá í íslenskum landbúnaði, og gera ekki athugasemdir við annað, sé ráðuneytið að lýsa því yfir að samningaferlið haldi áfram og þar með sé það óbeint að lýsa yfir stuðningi við þá vegferð ríkisstjórnarinnar að klára samningaferlið. Ekki náðist í morgun í Bjarna Harðarson, upplýsingafulltrúa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins til að fá svör við því hvaða þýðingu svör ráðuneytisins hefðu. Þá vildu embættismenn í ráðuneytinu sem fréttastofa ræddi við ekki tjá sig. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fleiri fréttir Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ Sjá meira