Innlent

Harður árekstur á Skálholtsvegi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mjög harður árekstur varð á Skálholtsvegi skammt austan við Biskupstungnabraut um klukkan þrjú í dag. Ökumaður fólksbifreiðar á leið vestur Skálholtsveg er talinn hafa misst bifreið sína út í vegkantin og brugðist við með því að kippa í stýrið inn á veginn. Við það mun hann hafa misst stjórn á bifreiðinni sem fór yfir á rangan vegarhelming og framan á bifreið sem í því kom á móti. Ökumaður var einn í þeirri bifreið en í hinni var farþegi sem skarst talsvert. 

Farþeginn var fluttur með sjúkrabifreið á heilsusgæslustöðina á Selfossi þar sem gert var að sárum hans. Báðar bifreiðarnar eru óökufærar eftir áreksturinn. Slökkviliðsmenn voru kallaðir á staðinn til að hreinsa upp olíur og önnur efni sem láku úr ökutækjunum á veginn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×