Ísfirðingum ekki greint frá eiturgufum frá sorpbrennslu 3. janúar 2011 08:59 Ísafjörður
Eiturefnið díoxín mældist 20 sinnum hærra en viðmiðunarmörk gera ráð fyrir í útblæstri frá sorpbrennslunni Funa á Ísafirði árið 2007. Þáverandi bæjarstjóri á Ísafirði segir að allar mælingar hafi verið kynntar opinberlega. umhverfismál Sorpbrennslustöðin Funi á Ísafirði var í sjö ár undanþegin ströngum reglum um losun eiturefnisins díoxín.Sorpbrennslustöðin Funi á Ísafirði var í sjö ár undanþegin ströngum reglum um losun eiturefnisins díoxín. Efnið, sem mældist í mjólk á bæ í næsta nágrenni við sorpbrennsluna í desember, er krabbameinsvaldandi og eitt það eitraðasta í náttúrunni.Aðeins ein mæling á díoxíni í útblæstri sorpbrennslunnar hefur verið gerð síðan reglurnar voru innleiddar hér á landi. Mælingin, sem var gerð 2007, sýndi að losunin var rúmlega tuttugu sinnum meiri en viðmiðunarmörk reglugerðarinnar fyrir nýjar stöðvar segir til um.Sigríður Kristjánsdóttir, deildarstjóri hollustuverndarsviðs Umhverfisstofnunar, veit ekki til þess að fólki á Ísafirði hafi verið greint frá því á þessum tíma að reykur frá sorpbrennslunni innihéldi mengunarefni.Pétur Tryggvi Hjálmarsson, silfursmiður á Ísafirði, sem lengi hefur gagnrýnt sorpbrennsluna, útilokar með öllu að niðurstaða mælingarinnar hafi verið kynnt sérstaklega. Steingrímur Jónsson, bóndi á Efri-Engidal, þar sem díoxínið mældist í mjólk, lýsti áhyggjum af framtíð sinni og heilsu í Fréttablaðinu á fimmtudag. Hann hefur árum saman talið reykinn skaðlausan.Sigríður segir að þegar Evróputilskipun um brennslu úrgangs var innleidd árið 2003 hafi starfandi sorpbrennslur fengið aðlögunartíma að kröfum reglugerðarinnar og því fengið undanþágu. Sett var skilyrði um að díoxín yrði mælt einu sinni, en sorpbrennslurnar þyrftu ekki að uppfylla strangar kröfur reglugerðarinnar fram að þeim tíma eða síðar. Eftir mælinguna átti að endurskoða undanþáguna. Sigríður segir þá vinnu standa yfir í samstarfi við Eftirlitsstofnun EFTA og fleiri aðila.Varðandi díoxínmælinguna hjá Funa segir Sigríður að hún hafi verið gerð fjórum árum eftir að Evróputilskipunin var innleidd hér. Niðurstaðan var að díoxínið frá Funa var rúmlega tuttugu sinnum hærra en viðmiðunarmörk fyrir nýjar stöðvar í reglugerðinni.Þáverandi bæjarstjóri á Ísafirði kannast ekki við að bærinn hafi látið undir höfuð leggjast að greina frá mælingum hjá Funa."Ég man ekki betur en að mælingar hafi verið gefnar út jafnóðum. Upplýsingum sem komu á mitt borð var ekki stungið undir stól," segir Halldór Halldórsson.Sorpbrennslunni Funa var lokað nú um áramótin. - shá
Mest lesið „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Innlent Sá sem féll í Ölfusá er látinn Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Innlent Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Innlent Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Fleiri fréttir „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Sjá meira