Jussanam vill fá sama stuðning og Marie Amelie Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. febrúar 2011 21:42 Jussanam Da Silva vildi gjarnan fá sama stuðning og Marie Amelie. „
Þetta er svolítið skrýtið af því að þessi kona hefur engin tengsl við Ísland. Hún er ekki hérna og vill ekki vera hérna," segir Jussanam da Silva, brasilísk kona sem hefur dvalið hér um skeið. Jussanam starfaði í tvö ár í Hlíðarskóla en vinnuveitandi hennar þurfti að segja henni upp störfum þar sem hún fékk ekki áframhaldandi atvinnu- og dvalarleyfi. Ástæðan fyrir því var sú að hún skildi við íslenskan eiginmann sinn. Hún á sér hins vegar þá ósk heitasta að búa hér til frambúðar. Jussanam furðar sig á því að tveir þingmenn hafi ákveðið að taka málstað rússneska rithöfundarins Madina Salamova og leggi til að henni verði veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Salamova, sem þekkt er undir nafninu Marie Amelie, hefur búið í Noregi frá unga aldri en var í síðustu viku gert að yfirgefa landið og er nú komin til Rússlands. Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp um að hún verði gerð að íslenskum ríkisborgara. Jussanam bendir á að sjálf hafi hún verið löglegur innflytjandi hér á landi. Hún hafi góð tengsl við Ísland, elski landið og vilji vera hér. „Það er starf í Hlíðaskóla sem bíður eftir mér og fjölmargir Íslendingar styðja mig," segir Jussanam. Það sé því skrýtið að þingmennirnir vilji berjast fyrir rússneska rithöfundinn en ekki sig. Jussanam vonast til þess að hún fái stuðning við málstað sinn frá þingmönnum. Einn stuðningsmanna hennar, á síðu sem hún heldur úti á facebook, hafi skrifað henni skilaboð um að einn þingmaður hafi sýnt málstað hennar áhuga. Sá þingmaður hefur hins vegar ekki haft samband við Jussanam enn sem komið er.
Tengdar fréttir Jussanam: Vonbrigði „Ég bjóst við bréfi í dag þannig að ég varð fyrir vonbrigðum. Ég held í vonina að bréfið hafi farið í póst í dag, en ef á að segja alveg eins og er þá held ég að málið sé enn í vinnslu,“ sagði Jussanam da Silva, brasilíska söngkonan sem bjóst við að fá í dag svar við umsókn um dvalarleyfi á Íslandi eins og fram kom í viðtali í Fréttablaðinu í gær. 29. janúar 2011 09:34 Jussanam vill verða íslenskur ríkisborgari Brasilíska söngkonan og frístundaleiðbeinandinn Jussanam Da Silva vinnur nú að því ásamt lögmanni sínum að sækja um ríkisborgararétt á Íslandi. Hún hefur enn ekki fengið svar frá dóms- og mannréttindaráðuneytinu um hvort hún fær hér atvinnuleyfi en ríkisborgararéttur myndi tryggja henni rétt til að starfa hér. 14. desember 2010 11:23 Jussanam fékk styrk frá StRv Jussanam Da Silva hefur fengið styrk frá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar sem auðveldar henni lífsbaráttuna þennan mánuðinn. Jussanam bíður enn svars dóms- og mannréttindaráðuneytisins um hvort hún fær hér atvinnuleyfi. Jussanam starfaði sem frístundaleiðbeinandi hjá Hlíðaskjóli sem heyrir undir Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur og greiddi hún því sín stéttarfélagsgjöld til Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar þar til hún var rekin þaðan vegna skorts á atvinnuleyfi. Styrknum fékk hún úthlutað úr styrktarsjóði félagsins eftir að ráðgjafi hafði bent henni á þann möguleika að sækja þar um. 10. nóvember 2010 13:06 Niðurdrepandi að lifa á ölmusu Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir fyrir Jussanam Da Silva. Í marga mánuði hefur hún beðið eftir því að fá svar um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi og hefur því þurft að framfleyta sér með aðstoð velgjörðarmanna. Hún sagði Sigríði Björgu Tómasdóttur frá lífinu á Íslandi, draumavinnunni á frístundaheimilinu Hlíðaskjóli og tónlistaráhuganum. 28. janúar 2011 22:00 Mest lesið Önnur sprunga opnast Innlent Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Innlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Innlent Fleiri fréttir Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Sjá meira
Jussanam: Vonbrigði „Ég bjóst við bréfi í dag þannig að ég varð fyrir vonbrigðum. Ég held í vonina að bréfið hafi farið í póst í dag, en ef á að segja alveg eins og er þá held ég að málið sé enn í vinnslu,“ sagði Jussanam da Silva, brasilíska söngkonan sem bjóst við að fá í dag svar við umsókn um dvalarleyfi á Íslandi eins og fram kom í viðtali í Fréttablaðinu í gær. 29. janúar 2011 09:34
Jussanam vill verða íslenskur ríkisborgari Brasilíska söngkonan og frístundaleiðbeinandinn Jussanam Da Silva vinnur nú að því ásamt lögmanni sínum að sækja um ríkisborgararétt á Íslandi. Hún hefur enn ekki fengið svar frá dóms- og mannréttindaráðuneytinu um hvort hún fær hér atvinnuleyfi en ríkisborgararéttur myndi tryggja henni rétt til að starfa hér. 14. desember 2010 11:23
Jussanam fékk styrk frá StRv Jussanam Da Silva hefur fengið styrk frá Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar sem auðveldar henni lífsbaráttuna þennan mánuðinn. Jussanam bíður enn svars dóms- og mannréttindaráðuneytisins um hvort hún fær hér atvinnuleyfi. Jussanam starfaði sem frístundaleiðbeinandi hjá Hlíðaskjóli sem heyrir undir Íþrótta- og tómstundaráði Reykjavíkur og greiddi hún því sín stéttarfélagsgjöld til Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar þar til hún var rekin þaðan vegna skorts á atvinnuleyfi. Styrknum fékk hún úthlutað úr styrktarsjóði félagsins eftir að ráðgjafi hafði bent henni á þann möguleika að sækja þar um. 10. nóvember 2010 13:06
Niðurdrepandi að lifa á ölmusu Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir fyrir Jussanam Da Silva. Í marga mánuði hefur hún beðið eftir því að fá svar um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi og hefur því þurft að framfleyta sér með aðstoð velgjörðarmanna. Hún sagði Sigríði Björgu Tómasdóttur frá lífinu á Íslandi, draumavinnunni á frístundaheimilinu Hlíðaskjóli og tónlistaráhuganum. 28. janúar 2011 22:00