Bjarni Ben: "Hann er góður vinur minn, Davíð Oddsson" 20. október 2011 19:00
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki upplifa skrif Morgunblaðsins þannig að Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður flokksins, sé að anda ofan í hálsmálið á honum á degi hverjum. Bjarni var kallaður "vikapiltur Steingríms J." í leiðara Morgunblaðsins 4. febrúar á þessu ári eftir að hann studdi Icesave-samninga Lee Buchheits. En þar stóð: "Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur skyndilega ákveðið að verða vikapiltur Steingríms J. í málinu. Ekki hefur fengist nein haldbær skýring á þeirri breytingu á afstöðu hans og hvers vegna hann ákveður að gefa landsfundi flokks síns langt nef. Sjálfstæðismenn eru agndofa." Bjarni segist ekki erfa þessa árás fyrrverandi formanns á sig. "Við vorum ósammála í þessu máli en ég ber mikla virðingu fyrir honum sem stjórnmálamanni og sem persónu. Hann er góður vinur minn, Davíð Oddsson," segir Bjarni. Bjarni segist ræða af og til við Davíð, en ráðfærir hann sig við fyrrverandi formann? "Við ræðum einstaka sinnum saman," segir Bjarni og segist hafa síðast rætt við Davíð fyrir nokkrum vikum, en vill ekki gefa upp um hvað. Sjá bút úr Klinkinu þar sem Bjarni ræðir um gagnrýni Davíðs og samskipti þeirra tveggja í myndskeiðinu hér fyrir ofan. Viðtalið við Bjarna í heild sinni má nálgast hér.thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Innlent Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Innlent Fleiri fréttir Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Sjá meira