Uconn vann háskólatitilinn í bandaríska körfuboltanum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 5. apríl 2011 09:00 Leikmenn UConn fagna í nótt.
Connecticut-háskólinn, eða Uconn Huskies, varð í nótt háskólameistari í körfubolta. Uconn lagði þá spútniklið Butler af velli, 53-41, í einum versta úrslitaleik í sögu keppninnar. Staðan í hálfleik var 22-19. Það var lélegasta hálfleiksstaða síðan 1946. Eins og sjá má á skorinu voru leikmenn liðanna ekki beint heitir. Þá sérstaklega leikmenn Butler sem voru með rúmlega 18 prósent skotnýtingu. Þeir hittu aðeins úr 12 af 64 skotum sínum í leiknum. Butler fékk ekki stig úr teignum fyrr en eftir 34 mínútur. 27 stig liðsins komu úr þriggja stiga skotum, 8 stig komu úr vítum og 6 stig úr tveggja stiga skotum. Það verður reyndar ekki tekið af leikmönnum Uconn að liðið spilaði frábæra vörn og setti met yfir flesta varða bolta í leik. Engu að síður var hittni leikmanna grátlega léleg rétt eins og gæði leiksins í heild. Hinn 68 ára gamli þjálfari, Jim Calhoun, var að stýra Uconn til sigurs í þriðja skipti á ferlinum. Hann jafnaði þar með John Wooden, Adolph Rupp, Bobby Knight og Mike Krztzewski sem allir hafa unnið þrjá titla. Calhoun er elsti þjálfarinn sem nær að sigra þessa keppni. Uconn var betra liðið á flestum sviðum. Það skoraði 26 stig gegn 2 í teignum. Vörnin varði 10 bolta og stal 4 boltum. Þetta var annað árið í röð sem Butler kemst í úrslit þvert á spár sérfræðinga. Skólinn þarf þó að bíða aðeins lengur eftir því að vinna mótið.
Körfubolti Mest lesið Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Fyrrum dýrasti enski leikmaðurinn mættur í F-deildina Fótbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Dagskráin í dag: Snóker og golf, aftur Sport Stuðningsmenn Palace mótmæla ákvörðun UEFA Fótbolti Elvar Már til Póllands Körfubolti Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Körfubolti Fleiri fréttir „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Elvar Már til Póllands Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Sjá meira