Bandaríkjamenn brutu ekki gegn Íslendingum Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. desember 2011 20:03 Sigríður Friðjónsdóttir er ríkissaksóknari. Embætti hennar var fengið til að rannsaka hvort Bandaríkjamenn hefðu gerst brotlegir við íslensk lög.
Ekkert bendir til þess að að starfsmenn öryggissveitar sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík hafi brotið íslensk lög né að starfsemi sveitarinnar brjóti í bága við þær heimildir sem sendiráðið hefur á grundvelli Vínarsamningsins um stjórnmálasamband ríkja. Þetta er niðurstaða ríkissaksóknara sem tilkynnt hefur verið innanríkisráðuneytinu. Forsaga málsins er sú að í fyrrahaust fór þáverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra fram á að ríkislögreglustjóri kannaði starfsemi öryggissveitar sem starfrækt er við sendiráð Bandaríkjanna á Íslandi. Var þetta gert í kjölfar frétta frá Noregi og Danmörku um að slíkar sveitir hefðu mögulega gerst brotlegar við þarlend lög. Ríkislögreglustjóri óskaði svara frá bandaríska sendiráðinu á Íslandi en í skýrslu embættisins kemur fram að sendiráðið hafi ekki svarað með fullnægjandi hætti. Gat ríkislögreglustjóri því ekki skilað niðurstöðu hvað varðar hugsanleg brot gegn íslenskum lögum. Dómsmála- og mannréttindaráðherra ákvað því að senda embætti ríkissaksóknara málið til þóknanlegrar meðferðar. Niðurstaða ríkissaksóknara er sú að ekki séu tök til þess að taka málið til áframhaldandi skoðunar og er því meðferð málsins hætt, eftir því sem fram kemur í frétt á vef innanríkisráðuneytisins. Fram kemur að fyrirliggjandi upplýsingar bendi ekki til þess að starfsmenn öryggissveitar bandaríska sendiráðsins hafi brotið gegn íslenskum lögum né heldur fari starfsemi sveitarinnar í bága við þær heimildir sem sendiráðið hefur á grundvelli Vínarsamningsins um stjórnmálasamband. Þá segir ríkissaksóknari að ekki hafi komið fram neinar upplýsingar sem bendi til þess að starfsmenn sveitarinnar hafi í einstökum tilvikum við eftirlitsstörf brotið gegn íslenskum lögum. Gögn sem lágu fyrir þegar málið barst ríkissaksóknara sýndu ekki fram á að fyrir lægi vitneskja um að refsivert brot hefði verið framið né heldur að grunur hafi verið um slíkt. Sú staða hafi ekki breyst við athugun ríkissaksóknara.
Mest lesið Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ Innlent Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Innlent Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Innlent Fleiri fréttir Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Sjá meira