Njósnarinn sem var ýtt út í kuldann Ólafur Þ. Stephensen skrifar 3. september 2011 11:00 Valerie Plame og Naomi Watts á tökustað Fair Game. Þær hittust oft þannig að Watts gæti kynnzt persónu sinni betur.
S ambíóin sýna þessa dagana á kvikmyndadögum í Kringlunni mynd leikstjórans Dougs Liman, Fair Game, með þeim Naomi Watts og Sean Penn í aðalhlutverkum. Myndin segir sögu Valerie Plame, fyrrverandi njósnara í leyniþjónustu Bandaríkjanna, CIA, og eiginmanns hennar Josephs (Joe) Wilson, sem gegndi meðal annars stöðu sendiherra í bandarísku utanríkisþjónustunni. Í starfi sínu hjá CIA í upphafi síðasta áratugar vann Plame meðal annars að því að afla upplýsinga um hvort Saddam Hussein, einræðisherra í Írak, ætti gereyðingarvopn eða stefndi að því að smíða þau. Þegar CIA vildi í febrúar 2002 sannreyna upplýsingar sem borizt höfðu frá brezku leyniþjónustunni um að Saddam hefði reynt að kaupa úran frá Afríkuríkinu Níger, kom sú hugmynd upp (að sögn Plame hjá kollega hennar) að fá Joe Wilson til að fara til Níger og kanna málið, en hann hafði starfað í sendiráði Bandaríkjanna í landinu og þekkti vel til, auk þess sem hann hafði áður verið CIA innan handar. Wilson lét til leiðast og komst í stuttu máli að þeirri niðurstöðu að ekkert væri hæft í frásögninni; Írakar hefðu ekki fengið neitt úran frá Níger. Í stefnuræðu sinni á Bandaríkjaþingi í janúar 2003 vitnaði George W. Bush, sem rökstuddi þar af hverju setja yrði Saddam úrslitakosti, engu að síður til upplýsinganna frá Bretum. Nokkrum vikum síðar réðust Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra inn í Írak. Leki í hefndarskyniSean Penn lagði sig fram um að líkja eftir framkomu og talsmáta Joes Wilson.Joe Wilson gagnrýndi innrásina harðlega. Í grein, sem hann skrifaði í New York Times í júlí undir fyrirsögninni „Það sem ég fann ekki í Níger" átaldi Wilson Bush fyrir að afvegaleiða þingið og almenning með því að ýkja hættuna sem stafaði af Saddam. Nokkrum dögum síðar var lífi Valerie Plame snúið á hvolf. Í Washington Post, sem kom inn um lúguna að morgni dags, var grein eftir dálkahöfundinn Robert Novak um ferð Wilsons til Níger. Þar var haft eftir tveimur „hátt settum embættismönnum" að Wilson hefði verið sendur til Níger vegna þess að eiginkona hans, sem starfaði hjá CIA, hefði stungið upp á honum. Í greininni og fleiri fréttum sem fylgdu í kjölfarið var látið líta út fyrir að Plame hefði notað aðstöðu sína til að útvega manni sínum verkefni. Staðreyndin var þó sú að Wilson fékk ekki greitt fyrir ferðina, heldur eingöngu endurgreiðslu á útlögðum kostnaði. Staðhæfingin var augljóslega sett fram til að beina athyglinni frá gagnrýni Wilsons á Bush og draga úr trúverðugleika hans. Öllu verra var að í greininni nafngreindi Novak Valerie Plame. Þar með var hulunni svipt af raunverulegu starfi hennar, sem engir vinir eða ættingjar vissu um nema eiginmaðurinn og foreldrar hennar. „Ég var í svefnherberginu mínu snemma morguns að lesa blaðið og í einu vetfangi áttaði ég mig á því að starfsferillinn var ónýtur, fjölskylda mín ekki örugg og tengiliðir mínir í hættu," sagði Plame í viðtali við brezka blaðið The Daily Telegraph nýlega. „Mér fannst eins og ég hefði verið lamin í magann." Böndin bárust fljótlega að hátt settum mönnum í Hvíta húsinu, þeim Karl Rove, einum af ráðgjöfum Bush forseta, og I. Lewis „Scooter" Libby, starfsmannastjóra Dicks Cheney varaforseta. Joe Wilson sakaði stjórn Bush um að hafa vísvitandi brotið lög með því að leka nafni CIA-njósnara, í því skyni að koma höggi á sig sem gagnrýnanda stjórnvalda. Ekki litu þó allir þannig á málið. Bandarískt samfélag var klofið vegna deilna um Íraksstríðið og hjónin fengu líflátshótanir, skemmdarverk voru unnin á heimili þeirra og fjölskyldan varð jafnvel fyrir aðkasti á almannafæri. Joe Wilson svaraði fyrir sig fullum hálsi hvar sem hann mögulega gat. Það varð ekki til að draga úr andúð stuðningsmanna stríðsins á honum. Valerie var hins vegar vön að láta lítið á sér bera og var til að byrja með algerlega á móti því að taka slaginn. Þetta olli spennu á milli hjónanna, sem á endanum var næstum búin að eyðileggja hjónabandið. Persónulegi þátturinnValerie og Joe Wilson við frumsýningu Fair Game í New York.Í Fair Game eru þessum persónulega þætti gerð rækileg skil, fremur en að rekja rannsóknirnar, málaferlin og þingyfirheyrslurnar sem fylgdu í kjölfar þess að hulunni var svipt af starfi Plame. Aðalleikararnir, Naomi Watts og Sean Penn, lögðu mikið á sig til að setja sig inn í aðstæður og tilfinningalíf hjónanna. Plame og Watts hittust í mörg skipti og Penn dvaldi í nokkra daga hjá þeim hjónum og setti nákvæmlega á sig hvernig Joe klæddi sig, talaði, gekk og hreyfði sig, jafnvel hvernig gleraugu og rakspíra hann notaði. Myndin er ágætur vitnisburður um þá réttlátu reiði, sem brunnið hefur innra með þeim hjónum í garð stjórnvalda sem stefndu öryggi eigin njósnara í hættu í pólitískum tilgangi. Söguþráðurinn, að minnsta kosti fyrripartinn, er hins vegar að talsverðu leyti byggður á ágizkunum, enda er Plame enn bundin þeim þagnareiði sem hún sór þegar hún réði sig til starfa hjá CIA. Opinber rannsókn á lekanum leiddi um síðir í ljós að upphaflegur heimildarmaður Novaks var Richard Armitage, þáverandi aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Karl Rove staðfesti heimildirnar. Auk þeirra höfðu Lewis Libby og Ari Fleischer, þáverandi upplýsingafulltrúi Hvíta hússins, komið því á framfæri við fréttamenn að kona Joes Wilson ynni fyrir CIA. Libby viðurkenndi að hafa sínar upplýsingar frá varaforsetanum, Dick Cheney, sem bar hins vegar við minnisleysi í 72 skipti við yfirheyrslur. Á endanum var höfðað opinbert mál gegn Libby einum og ekki vegna lekans sem slíks, heldur fyrir að ljúga að rannsakendum FBI og hindra framgang réttvísinnar. Libby fékk 30 mánaða fangelsisdóm, 250 þúsund dala sekt og var gert að sæta eftirliti í tvö ár eftir að afplánun lyki. Hann sat aldrei inni; Bush forseti nýtti heimild sína til að aflétta fangelsisvistinni, án þess þó að náða hann. Einkamáli Wilson-hjónanna gegn þeim Libby, Rove, Cheney og Armitage var síðar vísað frá dómi. Þau halda þó áfram baráttu fyrir því að opinberir embættismenn verði látnir standa ábyrgir gjörða sinna. "Áttu byssu? Hefurðu drepið mann?“ Hvernig spurningar vakna þegar í ljós kemur að gömul skólasystir er CIA-njósnari?Höfundur þessarar greinar er ekki alveg hlutlaus í afstöðu sinni til umfjöllunarefnisins. Við Valerie Plame þekkjumst persónulega, frá því að við vorum saman í námi í alþjóðastjórnmálum við London School of Economics veturinn 1993-1994. Þá hafði hún þegar verið í þjónustu CIA í nokkur ár, meðal annars í sendiráði Bandaríkjanna í Aþenu. En njósnarar þurfa auðvitað að mennta sig eins og aðrir. Okkur skólafélögum hennar flaug að sjálfsögðu ekki í hug að þessi stúlka með hófstilltu framkomuna, klassíska fatasmekkinn og alveg hreint prýðilega þekkingu á alþjóðamálum gæti hálsbrotið mann með einu handtaki og væri gríðarlega hittin með AK 47-riffli, eins og hún hefur síðar upplýst. Við héldum góðu sambandi eftir að náminu lauk. Eftir Lundúnadvölina flutti Valerie til Belgíu og stundaði fyrst nám við Evrópuháskólann í Brugge þar sem hún tók aðra meistaragráðu en fékk svo vinnu á Brussel-skrifstofu bandarísks olíumiðlunarfyrirtækis – eða það gaf nafnspjaldið sem hún lét mig einu sinni hafa í Brussel til kynna. Valerie flutti aftur heim til Bandaríkjanna og kynntist Joe Wilson. Í nokkur ár skiptumst við á jólakortum og myndum af stækkandi fjölskyldu; þau eignuðust tvíbura og fyrir átti Joe annað sett. Þegar við hittumst í Washington 2001 var hún nýlega farin að vinna aftur eftir að hafa verið heima hjá tvíburunum í rúmlega ár og umræðuefnin snerust um foreldrahlutverkið og hvað það gæti verið snúið að eiga lítil börn og vera um leið í krefjandi starfi sem útheimti mikil ferðalög. Þá vann hún hjá litlu fjárfestingarfyrirtæki í Georgetown – hélt ég – og gerði pólitískar áhættugreiningar á fjárfestingarkostum. Sem er reyndar ekki svo slæmt yfirvarp fyrir njósnara sem aflar upplýsinga um útbreiðslu gereyðingarvopna. Ég varð jafn gapandi hissa og aðrir vinir hennar og kunningjar sumarið 2003 þegar ég las fréttina um að hulunni hefði verið svipt af CIA-njósnaranum Valerie Plame og Washington væri á öðrum endanum vegna málsins. Nokkru síðar reyndi ég að senda henni tölvupóst en netfangið var ekki lengur til. Svo reyndi ég að hringja en númerið var ekki lengur í notkun. Enda kemur fram í Fair Game að hún hafi skipt fimm sinnum um símanúmer, meðal annars vegna líflátshótananna sem dundu á henni og eiginmanninum um tíma. Þau komust að lokum að þeirri niðurstöðu að þeim væri ekki vært í Washington og fluttu til Santa Fe í Nýju Mexíkó. Rúmu ári eftir afhjúpunina átti ég erindi til Washington og hafði uppi á Valerie í gegnum sameiginlegan kunningja. Við hittumst í Georgetown og hún rakti „Plamegate"-málið fyrir mér eins og það blasti þá við henni. Samtalið var ekki til frásagnar, enda hafði hún þá ekki farið í nein viðtöl vegna málsins, en í fullu samræmi við söguþráðinn sem rakinn er í Fair Game. Ég sleppti spurningunni sem hafði óneitanlega hvarflað að mér – þessari um bardagaþjálfunina og AK 47-riffilinn – en var skemmt þegar vinkona hennar er látin segja í bíómyndinni þegar hún veit hvað Valerie starfar raunverulega: „Áttu byssu? Hefurðu drepið mann?" Ég man hins vegar að hún hnyklaði brýrnar og virtist ekki mjög hrifin þegar ég sagði henni að ég væri að fara að taka viðtal við Richard Armitage, aðstoðarutanríkisráðherra. Kannski grunaði hana það sem þó kom ekki fram opinberlega fyrr en tæpum tveimur árum síðar, að Armitage var aðalheimildarmaðurinn fyrir lekanum sem umturnaði lífi hennar.
Menning Mest lesið Justin Bieber nýtur sín norður í landi Lífið Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Lífið Risa fataherbergi í glæsilegri íbúð Patriks sem nú er til sölu Lífið Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða Lífið Gengst við kókaínfíkn sinni Lífið Hver myndi vinna í slag, hundrað gaurar eða ein górilla? Lífið Jamie XX, De La Soul og Joy Anonymous á nýrri tónlistarhátíð í Laugardal Lífið Hafa náð að auka ráðstöfunartekjur sínar um 37 prósent Lífið Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Tónlist Með flygil Halldórs Laxness inni í stofu Lífið Fleiri fréttir Hafa náð að auka ráðstöfunartekjur sínar um 37 prósent Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða Hver myndi vinna í slag, hundrað gaurar eða ein górilla? Með flygil Halldórs Laxness inni í stofu Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Jamie XX, De La Soul og Joy Anonymous á nýrri tónlistarhátíð í Laugardal Gengst við kókaínfíkn sinni Justin Bieber nýtur sín norður í landi Risa fataherbergi í glæsilegri íbúð Patriks sem nú er til sölu Getum verið gröð án þess að blotna eða fá ris Hélt lítill kall í stjörnustríði væri Obi-Wan Kenobi Jón Gnarr birtir sönnunargagn A um ADHD Sveppi og Auddi í fallhlífarstökki yfir Dúbaí Nýtur lífsins í viktorísku koti í London Snorri og Nadine eignuðust son Íris Svava og Arnþór selja fallega íbúð á besta stað Harry Potter stjarna tveggja barna faðir Giftu sig við persónulega athöfn í sólinni Ástfangnar í fjörutíu ár Illuminati varð táknmynd ótta við ósýnileg öfl Infocapital Íslandsmeistari eftir æsispennandi keppni Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Veittu verðlaun fyrir dónalegasta orðið á Íslandsmeistaramóti í skrafli Þórhildur og Hjalti eiga von á barni Jiggly Caliente dragdrottning látin „Prófið að plokka og sjáið árangurinn“ Björn plokkar í stað Höllu „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Sjá meira