Sport

Maður stunginn á leik Chargers og Raiders

Stuðningsmenn Raiders voru vígalegir á leiknum í gær.
Stuðningsmenn Raiders voru vígalegir á leiknum í gær.
Alvarlegt atvik átti sér stað fyrir utan Qualcomm-völlinn í gær þegar leikur San Diego Chargers og Oakland Raiders í NFL-deildinni fór fram.

Þá var maður stunginn á bílastæðinu. Betur fór en á horfðist og er maðurinn ekki í lífshættu.

Fórnarlambið er augljóslega hrætt við árásarmanninn því hann neitaði að vinna með lögreglunni og gaf enga lýsingu á árásarmanninum.

Leikurinn sjálfur var þrælskemmtilegur og endaði hann með sigri Oakland, 24-17.



NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×