Innlent

Samfélagsmiðlarnir að gjörbreyta lýðræðinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson.
Ólafur Ragnar Grímsson.
Stöðufærslur á Facebook og myndskeið á YouTube eru að verða mikilvægari í alþjóðasamskiptum en ríkisstjórnir, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, í viðtali við CNN.

„Svokallaðir samfélagsmiðlar hafa breytt lýðræðinu á þann hátt að það sem gerist í hefðbundnum valdastofnunum eins og þinginu, ráðuneytum og jafnvel Hvíta húsinu - eða forsetaembættinu og ríkisstjórninni í mínu landi er nánast aukaatriði," sagði Ólafur Ragnar í viðtalinu sem sýnt var í gær.

„Ég veit að þetta er stór fullyrðing, sérstaklega þegar hún kemur frá anni sem hefur haft atvinnu í þessum stofnunum stærstan hluta lífs síns. En þessi kraftur samfélagsmiðla, er að mínu áliti, að breyta stjórnmálum á þann hátt að ég get ekki ímyndað mér að hefðbundnar stofnanir í lýðræði okkar haldi í við það," sagði Ólafur Ragnar Grímsson.

Ólafur Ragnar sagði að mótmæli sem skipulögð eru með samfélagsmiðlum og annarri tækni væru hollar fyrir samfélagið. Hann sagðist líka telja að tækniþróanir væru leið til að koma Íslandi á rétta braut eftir hörmungar efnahagshrunsins og eldgosanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×