Íslenski boltinn

Ashley Bares: Mikið afrek að vinna deildina með þessu liði

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ashley Bares með Íslandsbikarinn.
Ashley Bares með Íslandsbikarinn. Mynd/Daníel
Ashley Bares skoraði eitt marka Stjörnunnar í 5-0 sigri á Breiðabliki í dag og varð markadrottning deildarinnar með 21 mark í 18 leikjum. Hún var í viðtali á Sporttv í leikslok.

„Mér líður mjög vel því að er mikið afrek að vinna deildina með þessu liði. Ég er mjög spennt og stolt af mínu liði," sagði Ashley Bares kát í leikslok.

„Við náðum að spila góðan leik í dag og það var gaman að geta gert það fyrir alla stuðningsmennina okkar sem hafa staðið sig svo vel í sumar. Það var mjög gaman að spila þennan leik í dag," sagði Bares sem skoraði eina mark fyrri hálfleiksins.

„Við vildum klára mótið með stæl og sýna það og sanna að það sé ástæða fyrir því af hverju við erum á toppnum. Það tókst vel í dag," sagði Bares.

„Það er búið að vera frábært að vera á Íslandi og allir eru svo almennilegir við mig," sagði Ashley Bares áður hún hljóp til félaga sinna og fangaði Íslandsmeistaratitlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×