Séra Karl Sigurbjörnsson tjáir sig ekki 10. júní 2011 12:15 Karl Sigurbjörnsson ætlar að tjá sig um málið á þriðjudag
Biskup Íslands, séra Karl Sigurbjörnsson, ætlar ekki að tjá sig um skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings fyrr en eftir fjóra daga. Fréttastofa óskaði eftir viðtali við Karl í ljósi þess að í skýrslunni kemur fram að hann hafi brugðist á margan hátt og gert mistök þegar biskupsmálið svokallaða kom upp árið 1996 þegar séra Ólafur Skúlason, þáverandi biskup, var sakaður um kynferðisbrot. Þá kemst nefndin að þeirri niðurstöðu að viðbrögð presta og annarra starfsmanna kirkjunnar þegar málið kom upp hafi einkennst af ráðaleysi og skorti á faglegum og vönduðum vinnubrögðum. Kirkjuþing verður haldið á þriðjudag og munu kirkjunnar menn ekki tjá sig um skýrsluna fyrr en þá. Uppgefin rök eru þau að skýrslan hafi fyrst verið birt í morgun og að menn þurfi tíma til að fara yfir hana.
Tengdar fréttir Karl gerði mistök í máli Guðrúnar Ebbu Rannsóknarnefnd Kirkjuþings kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að Karl Sigurbjörnsson biskup hafi orðið á mistök sem forseti kirkjuráðs varðandi úrlausn mála Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur varðandi erindi sem hún sendi í mars 2009 vegna meintra kynferðisbrota föður síns, Ólafs Skúlasonar. 10. júní 2011 11:17 Ólafur með ráðandi persónuleika - dró kirkjunnar menn í dilka Persónuleiki Ólafs Skúlasonar, þáverandi biskups, hafði mikil áhrif á viðbrögð kirkjunnar manna þegar Ólafur var sakaður um kynferðisbrot árið 1996. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings sem birt var í morgun. "Þá verður ráðið af framburði þeirra sem fyrir nefndina komu að áhrif Ólafs Skúlasonar á samstarfsmenn sína og aðra starfsmenn kirkjunnar voru verulega mikil. Biskupinn hafi verið með mikinn og ráðandi persónuleika, hann hafi farið sínu fram og óhikað látið í ljósi afstöðu sína um stöðu málsins. Menn hafi verið dregnir í dilka sem annaðhvort "með honum eða á móti". Hafi hann þannig með framgöngu sinni haft mótandi áhrif á aðgerðir einstaklinga sem að málinu komu, hvort sem er á vettvangi kirkjuráðs, Prófastafélags Íslands eða stjórnar Prestafélags Íslands," segir í skýrslunni. 10. júní 2011 12:02 Skýrsla um biskupsmálið: Ráðaleysi og skortur á vönduðum vinnubrögðum Rannsóknarnefnd kirkjuþings hefur lokið við gerð skýrslu um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Skýrslan er rúmlega 300 síður að lengd en nefndinni var falið að leggja mat á viðbrögð kirkjunnar eftir að ásakanirnar komu fram á sínum tíma. Nefndinni var hinsvegar ekki ætlað að "fjalla um sannleiksgildi ásakana um kynferðisbrot sem fram hafa komið á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi." 10. júní 2011 11:02 Mest lesið Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Innlent Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Fleiri fréttir Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð Sjá meira
Karl gerði mistök í máli Guðrúnar Ebbu Rannsóknarnefnd Kirkjuþings kemst meðal annars að þeirri niðurstöðu að Karl Sigurbjörnsson biskup hafi orðið á mistök sem forseti kirkjuráðs varðandi úrlausn mála Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur varðandi erindi sem hún sendi í mars 2009 vegna meintra kynferðisbrota föður síns, Ólafs Skúlasonar. 10. júní 2011 11:17
Ólafur með ráðandi persónuleika - dró kirkjunnar menn í dilka Persónuleiki Ólafs Skúlasonar, þáverandi biskups, hafði mikil áhrif á viðbrögð kirkjunnar manna þegar Ólafur var sakaður um kynferðisbrot árið 1996. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings sem birt var í morgun. "Þá verður ráðið af framburði þeirra sem fyrir nefndina komu að áhrif Ólafs Skúlasonar á samstarfsmenn sína og aðra starfsmenn kirkjunnar voru verulega mikil. Biskupinn hafi verið með mikinn og ráðandi persónuleika, hann hafi farið sínu fram og óhikað látið í ljósi afstöðu sína um stöðu málsins. Menn hafi verið dregnir í dilka sem annaðhvort "með honum eða á móti". Hafi hann þannig með framgöngu sinni haft mótandi áhrif á aðgerðir einstaklinga sem að málinu komu, hvort sem er á vettvangi kirkjuráðs, Prófastafélags Íslands eða stjórnar Prestafélags Íslands," segir í skýrslunni. 10. júní 2011 12:02
Skýrsla um biskupsmálið: Ráðaleysi og skortur á vönduðum vinnubrögðum Rannsóknarnefnd kirkjuþings hefur lokið við gerð skýrslu um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Skýrslan er rúmlega 300 síður að lengd en nefndinni var falið að leggja mat á viðbrögð kirkjunnar eftir að ásakanirnar komu fram á sínum tíma. Nefndinni var hinsvegar ekki ætlað að "fjalla um sannleiksgildi ásakana um kynferðisbrot sem fram hafa komið á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi." 10. júní 2011 11:02