Foreldraráð mótmæla sameiningu leikskóla 28. mars 2011 21:17 Leikskólabörn.
Foreldraráð leikskólanna Seljaborgar og Seljakots hvetja borgarstjórn til að draga til baka fyrirhuguð áform um sameiningu leikskólanna tveggja. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá foreldrum. Þar segir að það sé mat foreldranna að undirbúningsvinna þessarar sameiningar hafi ekki verið nægilega vel unnin. Foreldrarnir vilja meina að ekki hafi verið sýnt fram á fjárhagslegan eða faglegan ávinning af sameiningu sem þessari sem réttlætir það rask og óöryggi sem slíkar breytingar myndu fela í sér. „Þá staðreynd er ekki hægt að fela með innantómum frösum og „klippa-og-líma“ skýrslu,“ eins og segir í tilkynningunni. Svo segir orðrétt: „Okkur þykir ekki hafa verið nógu vel rökstutt hver raunverulegur sparnaður er sem næst fram með þessari sameiningu. Ef um stórar fjárhæðir væri að ræða þætti okkur þetta skoðunarvert en á meðan engar tölur liggja fyrir um það hve mikið sparast finnst okkur þessi sameining ekki réttlætanleg. Eins og þetta blasir við okkur er um að ræða sparnað á minna en einu stöðugildi auk einhvers sparnaðar við sameiginleg innkaup og hugsanlega sérkennslu. Í ljósi þess að við drögum í efa að faglegur ávinningur af sameiningu leikskólanna tveggja sé umtalsverður þyrfti fjárhagslegur ávinningur að vera mjög mikill. Eins og áður segir hefur okkur ekki verið sýnt fram á hver fjárhagslegur ávinningur af sameiningunni yrði og gerum við því þá kröfu að við verðum upplýst um það hver hann yrði, ef til kæmi. Í ljósi þess hve frábært starf hefur verið byggt upp á leikskólum Reykjavíkurborgar á liðnum áratugum er varasamt að grípa til illa ígrundaðra ákvarðana nú þegar mörgum börnum er afskaplega mikilvægt að eiga skjól hjá starfsfólki sem ekki þarf að búa við óvissu né óöryggi. Foreldraráð leikskólanna beggja lýsa sig reiðubúin til að vinna með stjórnendum leikskólamála hjá Reykjavíkurborg að framtíðarskipulagi skólamála, með sparnað og hagræðingu að leiðarljósi.“
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira